Stuttbuxnadrengir
Það er voðalegt að fylgjast með hnignun ungliðahreyfingar sjálfstæðismanna. Maður heyrir varla bofs í þessum greyjum sem stýra þessu annað en eitthvað gelt um kosningasvindl og atkvæðasmölun. Svo virðist sem málefni skipti orðið engu í þessu og það sé bara nóg að vera svolítið "krútt", helst hafa ættarnafn, verður að hafa verið í versló og helst þar annað hvort formaður NFVÍ eða í ræðuliðinu. Svo er líka gott ef þér finnst gaman að gefa táningsstúlkum á lóðaríi nokkrar pitsusneiðar og kannski svolítinn bjór. Ég hef nú reynt að fylgjast með áherslum þeirra aumu manna sem hafa verið að belgja sig þarna og ég get ekki séð að það sé nein framúrskarandi hugmyndavinna eða nýstárlegar hugmyndir. Helst hefur þeim þótt við hæfi að gefa einhverjum kommum í útvarpshúsinu spil og kannski kerti í náttmyrkri hálfdauðs "menningarsjónvarps". Það er kannski þess vegna sem ekkert gerist þarnar við Efstaleiti, það eru örugglega allir að spila spilin sem Heimdellingar hafa gefið þeim.
Verst finnst mér þó þegar þeir sem bylja hæst í ungliðahreyfingunni ná kjöri á Alþingi. Þá þurfa þeir að fara í síðbuxur eins og ædolin þeirra og þá virðist sem allur vindur sé úr þeim. Það er eins og uppspretta hávaðans sé í kálfunum og gjafmildi hennar virðist í réttu hlutfalli við það magn lofts sem leikur um kálfana þeirra. Svo þegar síðbuxurnar hindra næðingin þá er bara allur vindur úr þeim og eru bara sáttir við að vera komnir á þing. Maður heyrir helst í þessum drengjum þegar Séð og Heyrt (en þó mestmegnis logið) slær upp fréttum að næturgamni þeirra með ólögráða unglingum eða einhverju þaðan af verra.
Er ekki kominn tími á að fá ferska vinda inn í pólítíkina, fá einhverja menn sem eru ekki myglaðir af langri fundarsetu hjá ungliðahreyfingunni þar sem frjóustu hugmyndirnar eru: "Kaupum útvegsspilið handa einhverjum sem er ekki kúl" eða "Pöntum pizzu". Er ekki kominn tími á að einhver af þessum mönnum standi við stóru orðin og geri eitthvað af viti. Hvurslags eiginlega dauðyflisflokkur er það þegar ekki nokkrum manni dettur í hug að bjóða sig fram til formanns nema krónprinsinum. Enginn virðist heldur þora í Þorgerði nema Kristján Júlíusson sem ég held að eigi ekki minnsta sjens í hana. Ég er ekki að segja að ég sé eitthvað mótfallinn þeim Þorgerði og Geir sem slíkum. Ég er bara mótfallinn rússneskum kosningum og mér finnst tímabært að einhver hræri svolítið upp í þessum flokki. Vatnið hefur staðið of lengi kyrrt og er orðið úldið. Nú er kominn tímí að einhver setji árarnar útbyrðis, gári vatnið aðeins, vaggi bátnum og komi svolítilli hreyfingu á málefnaumræðuna innan flokksins sem og út á við.
Ég hef orðið trú á að Gísli Marteinn geti gert góða hluti í borginni ef einhverjum tekst að koma svolítilli grimmd í hann. Ég mundi persónulega vilja sjá hann láta eins og hann gerir stundum í leikjum með Rögnunni. Verður alveg dýrvitlaus og berst eins og ljón, ýtir aðeins frá sér og lætur menn heyra það. Hvurslags eiginlega kosningabarátta er það þegar frambjóðendurnir keppast við að hlaða lofi á hvorn annan. Það er eins og þeir séu að reyna að fá kjósendur til að kjósa frekar mótframbjóðandann. Ég held reyndar að ég muni halda með Gísla Marteini. Ekki endilega vegna þess að hann sé einhver Messías heldur vegna þess að Vilhjálmur er orðinn of samdauna batteríinu öllu saman. Það þarf ungan mann sem er tilbúinn að gára vatnið aðeins. Hann þarf að vera skemmtilegur og með pólítíska sem og persónulega útgeislun. Hann þarf líka að vera svolítið grimmmur en þó rökfastur. Kurteis en þó harður í horn að taka. Gísli hefur flesta þessa kosti en eins og ég sagði áður þá finnst mér hann of linur. Ég vil sjá hann gagnrýna menn, ekki bara láta eins og allt sé í gúddí fíling í borgarstjórnarflokki sjálfstæðisflokksins. Það á ekkert allt að vera í gúddí fíling eftir svo langa fjarveru úr bílstjórasætinu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli