18. okt. 2005

Boltinn
Mínir menn fóru illa að ráði sínu í kvöld og náðu aðeins markalausu jafntefli gegn Lille á heimavelli í meistaradeildinni. Auk þess meiddist Giggs og Scholes fékk rautt þannig að hópurinn er aldeilis tekinn að þynnast. Vonandi geta ungu strákarnir staðið undir væntingum og hjálpað liðinu í gegnum öll þessi meiðsli á næstu vikum. Annars hef ég fremur litlar áhyggjur af þessu. Ég held að við munum taka Lille í Frakklandi og klára þennan riðil með stæl. Sjáum hvað setur.
Meiri áhyggjur hef ég hins vegar af mínum mönnum hér heima því Víkingar hafa enn ekki ráðið til sín þjálfara fyrir næsta sumar sem er sérlega slæmt þegar maður hugsar til þess að félagaskiptaglugginn hefur þegar opnað. Vonandi fer stjórnin að klára þetta sem fyrst og ég vona persónulega að Þorvaldur Örlygsson taki þetta að sér.

Heilsuátakið mikla
Þetta gengur enn sem komið er hörkuvel. Ég er þegar farinn að grennast og hlaupaformið kemur rólega. Ég er líka farinn að þyngja í lyftingunum og mestu harðsperrurnar farnar úr magavöðvunum. Ég hef haldið dampi sl. daga og er búinn að fara á hverjum degi sl. 8 daga í Laugar auk þess sem ég hef spilað fótbolta 3 af þessum dögum líka. Það magnaðasta er þó það að ég ekkert farinn að láta mér leiðast þetta. Læt ykkur vita hvernig gengur.

Settið að skipta um postulín
Kamarinn hjá settinu er fokheldur þessa dagana. Þau rifu bókstaflega allt út og ætla að skipta um heila klabbið. Pabbi er búinn að vera með sveittan skallann sl. daga við að rífa út og svo kom píparinn og lagði í þetta í gær. Svo kom flísalagningamaðurinn í dag og allt er komið á fulla ferð við að múra og pússa og ég veit ekki hvað og hvað. Páfinn hefur boðað vígsluathöfn með aðstoð Ljós-Gíslans að viku liðinni. Ef kostnaðar- og framkvæmdaáætlanir standast verður jafnvel boðið upp á þriggja skáka einvígi.

Engin ummæli: