16. maí 2002

Jæja! Nú er maður ekkert búinn að blogga í 4 daga. Það er að sumu leyti vegna anna, en fyrst og fremst er það leti. Því er náttúrlega frá heilmiklu að segja!!

Boltinn
Þar bera náttúrlega hæst Evrópumeistarar Real Madrid sem komu í veg fyrir að Þjóðverjarnir tækju þetta tvö ár í röð. Það er auðvitað hrikalegt að United skuli ekki hafa tekið þetta en af tveimur slæmum kostum var Real skárra en Leverkusen.
Síðan er það auðvitað klassamæting leikmanna á síðustu Ástaræfingu sem stendur upp úr. Við mættum sem sé 6 á æfinguna en einn lét sig hverfa þegar hann sá þessa lélegu mætingu þannig að raunverulega tóku 5 manns þátt í æfingunni sem varð öll hin skemmtilegasta í ljósi þess að 20% ölvun var á staðnum. Vonum að menn mæti betur í kvöld.

Gella vikunnar...
...er auðvitað Harpa Hinriksdóttir Pálssonar sem kom í heiminn á miðvikudagsmorgunninn. Til hamingju með frænkuna og stöðuhækkunina Viðar.

Geðsjúklingur vikunnar...
...og raunar ársins er hinn undursamlega klikkaði og njálgsetni maður Haraldur Örn Ólafsson. Persónulega held ég að skynsamlegast væri að setja á hann spennutreyju um leið og hann stígur út úr flugvélinni við heimkomuna, loka hann síðan inni í einhverju litlu bakherbergi á Kleppi og gleyma honum þar. Hvað fær fjölskyldumann eins og hann Harald til að klifra upp um fjöll og firnindi. Mér finnst hann eigi að einbeita sér meira að því að klifra upp á konuna sína reglulega og hætta þessu fjallarugli. Ég get nú alveg skilið fólk sem klifrar upp á fjöll vegna náttúrufegurðar eða útsýnis en að vera að klifra upp á einhvern snjóskafl til að sjá fleiri snjóskafla og skýin fyrir neðan; maðurinn er náttúrlega klikkaður. Ég get alla vega sagt ykkur það að ef ég fæ einhvern tíma þennan mann inn á borð til mín þá mun ég bjóða honum viðtal hjá geðlækni.

Skólinn
Er að klárast þessa dagana. Á morgun er það verklegt próf í skurðlæknisfræðilegri skoðun sem á að vera frekar þægilegt. Síðan er það villt grillpartý hjá ofurgellunni og læknisfrúnni Rögnu. Síðan eru tvær vaktir á Slysó um helgina og síðan verður ritgerðin sett í 5 gír auk þess sem endalaus námskeið verða á næstu dögum vegna sumarvinnunnar. Síðan er auðvitað sólarhringsbústaðarferð á mið-fim. í fylgd bekkjarins sem endar alltaf með sóðafylleríi. Menn reyna að vaða jökulár sem daginn eftir hafa rénað niður í lækjarsprænur. Stúlkur verða svo ölvaðar að þær baða drengi í kokkteilum og drengir syngja dátt á meðan.
Látum þetta gott heita í dag en brátt fær holræsadrottningin að kenna á því!!!

Engin ummæli: