10. maí 2002

Boltinn
Það er auðvitað þjóðarsorg á Gíslandi eftir að United mistókst að tryggja sér nokkra einustu dollu í ár og nú skil ég auðvitað hvernig aumingjunum í Liverpool hefur liðið síðustu ár, Þeir hafa greyin bara unnið eina merkilega tunnu síðastliðin ár og það var enski bikarinn í fyrra. Annars vonast maður bara til að sagan endurtaki sig og þeir vinni þrefalt á næsta ári eins og skeði síðast þegar þeir kláruðu tímabil tómhentir. Síðan finnst mér svolítið magnað sem ég heyrði í gær og reyndar vissi fyrir að frá stofnun úrvalsdeildarinnar á Englandi hefur United aldrei endað neðar en í 2. sæti sem þýðir einfaldlega að þeir hafa aldrei verið fyrir neðan liverpool, ha, ha. Síðan vil ég einnig fagna því að Sven er snillingur. Hann velur tvo halta United-menn (Beckham og Butt) fram yfir einn besta leikmann liverpool á tímabilinu, Danny Murphy. Það segir náttúrlega mikið um muninn á þessum liðum. Annars verð ég að segja að mér finnst Arsenal vel að titlinum komið. Þeir hafa spilað skemmtilegan sóknarbolta í anda United. Þeir hafa einfaldlega verið bestir í Englandi í vetur. Til hamingju með það Arsenal-aðdáendur.

Pólítíkin
Nú stefnir allt í það að Reykvíkingar kjósi yfir sig pólí-tíkina hana Ingibjörgu Sólrúnu í þriðja skiptið í röð. Þetta þýðir auðvitað það að rúmlega helmingur atkvæðisbærra manna og kvenna í Reykjavík eru hálfvitar. Enda er það mín kenning að þeir sem hafa nokkuð vit í kollinum séu löngu fluttir í nágrannasveitarfélögin enda hefur Sjálfstæðisflokkurinn sennilega sjaldan staðið jafnvel í Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ. (þrátt fyrir tóma Arnarnesplebba í ungliðastarfi Garðabæjar:)).

Grey dagsins
Grey dagsins er auðvitað Árni greyið Johnsen. Sá hann í Kastljósinu í gær og loksins sýndu þessir steingeldu stjórnendur tennurnar. Maðurinn þráast við að kalla lögbrot sín mistök og vogar sér að líkja þjófnaði sínum við eyðslusemi annarra pólítíkusa. Munurinn er auðvitað sá að þeir eyða löglega en ekki hann. Annars er ég sammála Viðari með að það mætti fara rólega í að kjöldraga manninn en mér finnst það í lagi ef hann er sjálfur á staðnum til að svara fyrir sig eins og í Kastljósinu. Þetta var betra en Tyson v. Holyfield. Hann var í köðlunum allan tímann og endaði með persónuárásum á stjórnendur. Þetta var mjög gamana að sjá.
Valsmenn stefna líka í að verða grey dagsins enda vona ég að þeir tapi í Vatnsmýrarbragganum í kvöld. Hlakka til að horfa með spúsu minni sem er harður Valsmaður og mjög tapsár. Verð samt að viðurkenna að þeir töpuðu á dómaraskandal á Akureyri á miðvikudag.

Tónlist
Hef ekki tíma til að ítarlegrar umfjöllunar í dag en mæli með jazz-saxafónsnillingnum Stan Getz. Ef þú ert í góðu skapi er hann snilld og ef þú ert í fýlu þá lagast það fljótlega við hlustun. Hann er snillingur maðurinn.

Engin ummæli: