12. maí 2002

12.5.2002

Boltinn
Stoke tókst með glæsilegum hætti að tryggja sér sæti í 1. deild að ári og því er loksins hægt að hrekja þá fullyrðingu að Stoke sé djók. Gauji hefur greinilega ennþá þennan bikarúrslitadraug með sér.
Barcelona-mistókst síðan í gærkvöldi að skjóta Real aftur fyrir sig í spænsku deildinni þegar þeir gerðu aðeins 1-1 jafntefli við botnlið Zaragosa. Með sigri hefði Barca krækt í 3. sætið með því að jafna Real að stigum en Barca hefur betri markatölu. Það hefði verið ljúft að klára fyrir ofan Real eftir dapra leiktíð en vonandi lagast þetta á næstu leiktíð.

Skólinn
Ritgerðin komst í fluggírinn í gær og stefnt er að því að halda fluginu áfram í dag. Þetta kemur allt saman þegar maður drullast til að setjast niður.

Annað
Viðar hefur nú ekki bloggað í umtalsverðan tíma og er maður farinn að hafa áhyggjur af heilsuleysi kappans eftir drykkju föstudagsins.
Fyrir áhugasama er hér slóðin: www.vidar.blogspot.com

Læt þetta duga í dag!

Engin ummæli: