Boltinn
Ástin hefur verið endurvakin í allri sinni dýrð og hafa gamlir jaxlar sést skeiða um velli unaðssemdanna auk þess sem nýr en óreyndur þjálfari hefur verið ráðinn með ærnum tilkostnaði. Meðal þeirra sem verða með í sumar má nefna Magnús Gísla Cole og Sveppa-ofurpoolara. Auk þess hefur Viðar skotið rótum á miðjunni þaðan sem hann opnaði markareikning sinn í fyrsta leiknum sem hann spilaði. Loks hefur heyrst að Eiki-Redknapp (svonefndur vegna tíðra meiðsla) ætli að sveifla skönkum í þágu Ástarinnar. Síðast en ekki síst er miðjujaxlinn Albert væntanlegur á æfingar en heyrst hefur að hann hafi tekið rosalega á því í vetur og hafi aldrei verið eins skorinn og rosalegur. Það hefur einnig heyrst að Örvarinn ætli að taka svakalegasta come-back síðan land byggðist og sé fær í flestan sjó. Það er því ljóst að enginn mun standast hinu geysisterka lið Ástarinnar snúning í sumar og því er hið raunverulega markmið Ástarinnar um Evrópumeistaratitil fyrir árið 2008 orðið raunhæft aftur.
Í gærkvöldi varð draumur minn að veruleika þegar Braggabúunum í Vatnsmýrinni tókst ekki að vinna Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Endalaus gleði!
Skólinn
Ég er að reyna að drullast til að klára ritgerð um rannsóknarverkefnið mitt sem ég skilaði munnlega í lok mars. Það gengur frekar illa hjá mér að komast í gang og maður verður virkilega að halda á spöðunum næstu daga því fyrir 31. maí þarf ég að taka verklegt próf í skurðlæknisfræði (þ. 17.5.), síðan að vinna aðlögunarvaktir á Slysó (18.&19.5), síðan fara á undirbúningsnámskeið fyrir sumarvinnuna 21.-23.5., svo er víst námskeið í endurlífgun (svokallað ACLS eða Advanced Cardiac Life Support-námskeið) sem verður dagana 27.-29.5 að ég held og loks eru svo ritgerðarskil 31. maí. Sagan segir að þetta ACLS-námskeið sé massaerfitt og maður verður að mæta 100% auk þess sem maður má ekki fá nema örfáar villur á prófi í lok námskeiðs (enda um líf og dauða að tefla).
Heima eða heiman
Við Edda stöndum í ströngu þessa dagana við að verjast árásum æstra íbúðareigenda sem vilja ólmir leigja okkur íbúðirnar sínar næsta vetur. Lengi vel stóð frænka hennar Eddu best að vígi en á síðustu stundu á “uppstillingardag” kom inn massívt tilboð. Við erum að vega og meta stöðuna og fáum að skoða íbúð keppinautarins eftir helgi í síðasta lagi. Það er sem sé nokkuð ljóst að næsti vetur verður að heiman eða öllu heldur, heima verður ekki lengur heima hjá settinu. Innflutningspartý yfirvofandi!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli