21. apr. 2004

Bullið er ættgengt!
Ætli ég verði ekki að setja þetta á einfaldan hátt fyrir þá bræður til að þeir skilji þetta.
Tilgangur prestsins með predikun sinni var að sögn þeirra bræðra að sýna fólki fram á hversu röng, út frá siðaboðskap biblíunnar, árás Ísraelsmanna á Hamas-leiðtogann var. Ég held að það þurfi ekki prest til að benda fólki á það en við skulum, í þágu rifrildisins, taka þá röksemdafærslu gilda.

Þar sem ég geri ekki ráð fyrir að meginþorri fólks standi nokkurn tíma í þeim sporum að taka ákvörðun um að sprengja einhvern í loft upp geri ég ráð fyrir að prestgarmurinn hafi ætlað að koma þeim skilaboðum til safnaðarins að hann ætti ekki að styðja menn sem taka slíkar ákvarðanir. Hér værum við þá að tala um Ísraelsstjórn.

Þar sem ég geri ekki ráð fyrir að nokkur heilvita maður styðji slíkar aftökur þá hefur presturinn líklega verið að biðla til fólks að styðja ekki menn sem styðja slíkar ákvarðanir. Hér væri það þá Bush Bandaríkjaforseti.

Fæst okkar eigum sennilega eftir að hitta Bush til að heita honum stuðningi okkar við stjórnarákvarðanir hans og því mætti ætla að presturinn hafi verið að gagnrýna þá sem styðja Bush, t.d. íslensku ríkisstjórnina. Boðskapurinn hefur því líklega verið sá hjá prestinum að hvetja fólk til að gera hið eina kristilega í stöðunni að hans mati og það er að styðja ekki ríkisstjórnina heldur andstæðinga hennar. Það má því auðveldlega álykta að presturinn hafi verið að beita stöðu sinni til að hvetja söfnuð sinn til að styðja frekar stjórnarandstöðuna heldur en stjórnina.

Presturinn gerir hins vegar sömu mistök og Þorgeir í röksemdafærslu sinni. Það er ekki jafnaðarmerki á milli þess að styðja við bakið á Bush í Írak og styðja allar ákvarðanir hans. Pílan gengur í aðra áttína ekki hina. Þó Dabbi styðji Bush sem styður Sharon sem styður á hnapp til að sprengja einhvern annan morðingja í loft upp er ekki hægt að ætla Dabba greyinu að styðja á hnappinn væri hann í sömu aðstöðu og Sharon.
Nei, nei, nei, Þorgeir!
Stjórnmál dagsins og trúmál eiga ekki samleið. Til þess höfum við annars vegar kirkjur og presta og hins vegar Alþingi og þingmenn. Það má þó færa rök fyrir því að trú sé ákveðin tegund af pólítík, en pólítík ætti aldrei að vera ákveðin tegund af trúarbrögðum. Örin leiðir í aðra áttina en ekki hina. Þú varst hins vegar aldrei sleipur í stærðfræði þannig að ég fyrirgef þér þessa litlu yfirsjón. Ef prestinn langar að skipta sér af alþjóðlegum stjórnmálum ætti hann að bjóða sig fram til Alþingis en ég efa að nokkur maður mundi kjósa hann - hann mundi sennilega fara að skíra börn og gefa saman foreldra þeirra í Alþingishúsinu.

Þú heldur áfram að hjakka í sama farinu með tjáningarfrelsis- og siðapredikunarrökin þín sem við erum báðir sammála um að séu hluti af hlutverki prestsins. Þú ert eins og biluð grammófónplata. Ég hef aldrei sagt að prestinum væri ekki frjálst að taka dæmi úr daglegu lífi. Það mundi samt seint teljast eðlilegt í huga flestra að prestgreyið útvarpi persónulegum árásum á ráðamenn erlendra ríkja. Prestar eru í huga flestra sameiningartákn safnaðarins, ekki stjórnmálamenn, og presturinn ætti að varðveita þetta hlutverk sitt. Það gerir hann með því að forðast að gera sig fjarlægan ákveðnum hluta safnaðarins með því að taka afstöðu í einstökum deilumálum í þjóðfélaginu. Hann er meira svona sá sem bendir á í hvaða anda lausnin ætti að vera heldur sá sem málar skrattann á vegginn. Það er mín skoðun á hlutverki prests en þú hefur þína - reyndar ekki sérlega góða en alltént þína eigin.

Já, og dæmin sem þú skildir ekki af hverju ég tók, þessi með hetjurnar gömlu. Þau sýndu að menn eru ekki alltaf rétt dæmdir af samtímamönnum sínum, allra síst trúarleiðtogum. Í ljósi þeirrar reynslu held ég að trúarleiðtogar ættu að forðast að fella dóma yfir samtímamönnum sínum en frekar að leiðbeina þeim úr vandanum með því að ráðast að rótum hans. Rætur þessar er yfirleitt frekar að finna í þjóðfélagslegum gildum en vandanum sjálfum og því tilgangslaust að ráðast á vandann sem slíkan. Í því felst bara tvíverknaður. Presturinn ætti því frekar að einbeita sér að þessum þjóðfélagslegu gildum og nota ónafngreind dæmi úr samfélaginu en ekki stjórnmálum. Ég held að dæmisögur um ísrealska forsætisráðherra sem sprengja andstæðinga sína í loft upp standi daglegu amstri hins venjulega Íslendings ekki mjög nærri. Hefur þú heyrt um að fólk sprengi hvort annað í loft upp á aðalfundum hlutafélaga, íþróttafélaga eða húsfélaga hér á landi?

Samlíking þín á læknum og kjötiðnaðarmönnum var greinilega ætluð til að gera lítið úr læknum en þú áttar þig ekki á því að um leið gerirðu lítið úr kjötiðnaðarmönnum. Er í alvöru svo hræðilegt í þínum huga að líkjast kjötiðnaðarmanni að þér finnst niðrandi að líkja læknum við þá? Hann er kannski ekki nógu menntaður fyrir þig. Ef sú læknisfræði sem ég hyggst stunda líkist á einhvern hátt þeirri göfugu list að meðhöndla kjötafurðir á þann hátt sem ég og þú höfum margsinnis notið við grillið, þá finnst mér ekki leiðum að líkjast.

Nú vona ég að þú hafir hægt um þig því ég hef ekki tíma til að kenna þér meira. Er að fara i próf eftir helgi.

20. apr. 2004

Þorgeir...
...telur sig hafa sigrað í mikilli ritdeilu. Veit ekki hvort ég ætti að leyfa honum að lifa í tálsýninni eða svara eymdarlegu væli hans um það að trúmál séu pólítík á einn eða annan hátt. Vil bara benda á það að hlutverk prestsins er að koma siðaboðskap biblíunnar til skila til sóknarbarna sinna. Ekki gat ég nú séð að skammarræða hans hefði nokkra þýðingu fyrir sóknarbörn hans heldur var hún einungis árás á ákvarðanir erlendra ráðamanna. Ráðamanna sem mér finnst ólíklegt að boðskapur prestins reiða nái nokkurn tíma til. Reyndar beindi hann orðum sínum einnig til íslenskra ráðamanna sem fæstir teljast til hans sóknar og ég geri ekki ráð fyrir að þeir hafi nokkurn áhuga á orðum hans. Reyndar fannst mér verst að prestgreyið skildi predika með svona mikilli dómhörku og heift sem sæmir hvorki presti né reyndar nokkrum manni sem trúir á Jesú Krist (ég skal vera fyrstur að viðurkenna að þetta kemur úr hörðustu átt).

Ég mun hins vegar aldrei fallast á þá fáránlegu alhæfingu Þorgeirs að trú sé tengd stjórnmálum en hún gæti hins vegar verið á jaðri svokallaðrar pólítíkur sem er miklu víðara hugtak, a.m.k. í enskri merkingu. Kristinn trú snýst miklu frekar um ákveðin mannleg gildi og það má heimfæra þau á hvaða stefnu sem er eins og krossferðir vestrænna morðingja og spænski rannsóknarrétturinn sönnuðu margsinnis.

Það er því aðeins spurning um sjónarhorn hvernig þú lítur á hlutina. Hvernig heldur þú til dæmis að menn að nafni Thomas Jefferson, George Washington, Ingólfur Arnarson, Spartakus og Jesús Kristur svo einhverjir séu nefndir hafi komið “prestum” samtíma síns fyrir sjónir? Jefferson, Washington, Spartakus og Jesús voru ekkert annað en uppreisnarleiðtogar ef þú lítur á það frá sjónarhorni ráðamanna í þeim löndum sem þeir bjuggu. Ingólfur var ekkert annað en ótýndur glæpamaður frá Noregi sem flúði land ef ég man söguna mína rétt (þú leiðréttir mig annars bara). Sagan dæmir menn og þeir sem ég nefni hér að ofan voru heppnir að því leyti að þeir voru sigurvegarar (sumir í veraldlegum skilningi, aðrir því miður aðeins í siðferðilegum) og sagan var skrifuð af samherjum þeirra. Hve margir heldur þú að hafi farið af stað með jafngöfug og falleg markmið og þessir menn en endað í gálganum vegna þess að þeir áttu ekki nógu miklu gengi að fagna. (og já Jesús Kristur var sigurvegari þrátt fyrir að hann hafi lent á krossinum)

Staðreyndin er sú að prestar eru eins og þú segir siðapostular en boðskapur þeirra ætti að miðast við þarfir söfnuðar þeirra. Af nógu er að taka sem stendur huga safnaðarbarna prestsins ágæta miklu nær en athafnir ráðamanna erlendra ríkja. Mín skoðun er sú að prestar megi tala almennt um boðskap Guðs en að ráðast með beinum hætti á ákveðnar ákvarðanir eða athafnir stjórnvalda er bara ekki í þeirra verkahring, til þess höfum við stjórnarandstöðuna. Það vill bara svo til að hún er full af aumingjum sem geta ekki komið fyrir sig orði svo maður skilur svo sem að prestgreyið verði svolítið pirrað og missi stjórn á skapi sínu.

Gaman þætti mér að sjá viðbrögð þín ef presturinn hefði verið á gagnstæðri skoðun við þínar. Ekki er ég viss um að þú hefðir stutt tjáningarfrelsi hans þá.

Það má vissulega færa sterk rök fyrir því að allir eigi rétt á sinni skoðun en það er hins vegar ekki alltaf viðeigandi að misnota aðstöðu sína til að koma henni á framfæri.

Og að lokum Þorgeir litli. Þú veist greinilega ekki nokkurn skapaðan hlut um hlutverk lækna því 90% af vinnu okkar er einmitt að fá fólk til að breyta rétt. Sennilega er það ríkari þáttur í okkar vinnu en presta. Mjög oft er það einmitt að koma fólki í skilning um afleiðingar gerða sinna – ekki svo ólíkt prestinum góða er það? Skurðaðgerðir og lyf eru bara hækjur sem við notum til að hjálpa fólki að ná markmiðum sínum. Þú opinberaðir grátlega vanþekkingu þína á læknisfræði með þessari kjánalegu samlíkingu við kjötiðnaðarmann sem var móðgandi fyrir kjötiðnaðarmenn ekki síður en lækna. Það er svona álíka og ég líkti sagnfræðingum við mennina sem skrifa símaskrána.
Voltaire hafði ólíkt meiri skilning á þessu hlutverki enda líklega töluvert greindari en við báðir. Hann sagði:

The art of medicine consists in amusing the patient while nature cures the disease.
Voltaire


Læt það vera lokaorðin í þessari umræðu enda voru rök þín fremur persónulegar árásir á áhuga mínum á ýmsu sem þú fyrirlítur heldur en raunverulegar rökfærslur. Ég gæti svo sem lagst jafnlágt og gert grín að líkamsræktaráhuga þínum og öðrum áhugamálum, jafnvel kvikmyndasmekknum en kýs að gera það ekki og vænti sömu virðingar frá þér.

19. apr. 2004

Bullið í Þorgeiri
Nei sorry, my bad. Það kemur í ljós eftir allt saman að ég saknaði ekki bullsins í Þorgeiri. Þú getur hætt núna Þorgeir.
Fötin skapa manninn. Nakið fólk hefur lítil sem engin áhrif í samfélaginu.
Mark Twain


Boltinn
Skandall, djöfulsins skandall. Við töpuðum fyrir Hafnarmynninu á laugardaginn. Ég gæti grátið. Ég hef bara grátið svo mikið yfir hörmulegu gengi minna manna í vetur að “the rivers are dry” eins og skáldið mælti. Vona bara að þeir komi ekki til Íslands til að tapa fyrir skítaliðum eins og KR eða Fylki. Jæja. Þriðja sætið er altént í öruggri höfn en það þýðir annars flokks flipa á mína menn þegar dregið verður í riðla Meistaradeildarinnar í haust. Það þýðir aftur sterkari mótherjar og það merkir síðan strembnara mót. Ætlar þessum aumingjum aldrei að takast að taka sig saman og endurheimta þessa fjandans Evrópublikkdollu aftur? Er von ég spyrji?.

Metallica
Ég er í þessum töluðu orðum að melta þessa gæðahljómsveit enda stendur til að fara á tónleikana þann fjórða júlí. Ætla mér að ná í miða enda ekki á hverjum degi sem heimsfræg hljómsveit kemur hingað. Eða jú, það gerist næstum á hverjum degi í sumar: Deep Purple, Pixies, Pink, Sugababes, Damien Rice og Metallica hafa heiðrað eða munu heiðra landann með nærveru sinni þetta árið. Verst þótti mér að fá ekki miða á Damien Rice enda er hann snillingur.
Mér finnst Metallica nú ekkert stórkostlegt band en þeir eru temmilega þéttir þegar maður er í þannig skapi. Eiga líka inn á milli algerar perlur en margt af því sem læðist frá þeim er alger bílskúrshorbjóður. Lítið skárra en öskur í ölvuðum íslenskum metalböndum.
Þegar...
...ég fer til tannlæknis býst ég ekki við yfirliti frétta.
...ég versla í matinn kæri ég mig ekki um að kaupa bíl.
...ég horfi á fótbolta hef ég engan áhuga á fræga fólkinu sem situr í stúkunni.
Og þegar ég fer í kirkju (sem gerist allt of sjaldan) þá kæri ég mig ekki um að heyra pólítíska sannfæringu prestsins, hvort sem hún samræmist minni eigin eður ei. Mér finnst allt of algengt að prestar og biskupar séu eitthvað að rífa sig opinberlega um pólítík. Annað hvort eru þessir menn prestar eða ekki.
Nú er ég ekki að segja að prestar megi ekki hafa skoðun á pólítík. Þvert á móti held ég það sé hverjum presti hollt. Hins vegar eiga þeir bara að halda henni fyrir sjálfan sig og sína nánustu en ekki misnota aðstöðu sína til að básúna þær yfir almúgann sem á sér einskis ills von. Hvernig finndist ykkur annars er þið kæmuð á læknastofu til mín og ég eyddi fyrstu 10 mínútunum af tímanum ykkar í að blaðra um skoðun mína á Femínistafélaginu eða Kommúnistaendurhæfingarumhverfisverndarsinnaflokki Þórshafnar. Ég er ansi hræddur um að þið mynduð ekki sætta ykkur við slíka fyrirlestra og leita annað næst.

Prestgarmurinn þarna í Neskirkju eða hvar sem hann nú var hefði fremur átt að eyða tíma sínum og annarra í að biðja fyrir þeim sem um sárt eiga að binda vegna stríðanna í Írak, Afganistan og Ísrael.
Ykkur að segja þá var ég sammála prestgreyinu í meginatriðum nema hvað mér fannst óviðeigandi að hann predikaði skoðanir sínar, ekki aðeins yfir sinn eigin söfnuð, heldur yfir alþjóð sem sat hugfangin og hlustaði á Ríkisrekna fagnaðarerindið við Efstaleiti.
Hvað er málið?
Af hverju bloggar enginn? Það er greinilega eftirspurn eftir bloggi því ég fæ ekki betur séð en síðan mín sé vinsæll áfangastaður brimknapa veraldarvefsins. Kannski maður reyni að seðja blogghungur vafrans með reglulegum færslum.

Uppvakning lopputoppsins kattarins hefur ef eitthvað er, dregið úr færslum kisunnar og verður að teljast líklegt að viðurnefnið “kettlingurinn” festist við hann á næstunni.

Þorgeir oflátungur hefur hægt um sig aldrei þessu vant og er ég næstum farinn að sakna bullsins í honum.

Gunni Thor segist vera spá á í að hætta. Ja bloggfærslunum hans mundi ekki fækka tilfinnanlega við það.

Heiðar skýlir sér enn á bakvið dugnað ektakvinnunnar sem er dugleg sem endranær.

Blogg kumpánanna Hjölla og Hauks eru rýrari en heilavefur ónefnds stórveldisforseta.

Elnan, Önundur og Arnór eru til fyrirmyndar sem fyrri daginn og fá öll plús í kladdann. Kannski maður fari að linka aftur á hraðaspurningamógúlinn Arnór.

Stefán Pálsson er líka duglegur en það er bara svo hrikalegt að sjá svona bráðgáfaðan og efnilegan ungan mann sökkva dýpra og dýpra í ruglið. Nú er ekki nóg með að hann kjósi Neikvæðni- og framfarastöðvunarflokk alþýðu heldur styður hann Frammara með ráðum og dáð. Stefán! Er þér illt?

Ég hata Bloggerinn
Í hvert sinn sem ég skrifa eitthvað að ráði þá setur hann spurningarmerki í staðinn fyrir íslensku stafina. Ég læri hins vegar seint af reynslunni og skrifa endurtekið langlokur sem hann síðan eyðileggur. Þið urðuð af einni slíkri en hún mun lagfærð við tækifæri og birt innan skamms.

16. apr. 2004

Varist að lesa heilsubækur, þið gætuð dáið sökum prentvillu.
Mark Twain

15. apr. 2004

Skandall í ensku
Þrátt fyrir ótrúlega hæfileika og síendurtekna stjörnuframmistöðu hefur Cristiano Ronaldo ekki verið tilnefndur sem einn af þeim sex sem koma til greina sem efnilegasti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni. Reyndar eru allir sem eru tilnefndir nema kannski Wayne Rooney búnir að standa sig vel í vetur en sennilega aðeins Kolo Toure og John Terry betur en hinn ungi Ronaldo. Hins vegar getum við United menn huggað okkur við það að Ronaldo hefur enn fimm ár til að vinna þennan titil þannig að það þarf ekki að örvænta.
Annars þykir það tíðindum sæta að enginn leikmaður MUFC er tilnefndur í hópi bestu leikmanna deildarinnar en á því er einföld skýring. Þeir hafa ekki getað rassgat í vetur miðað við hvað þeir hafa sýnt áður. Þeir eiga því ekki skilið að vera nefndir. Þannig er nú það. Það er nú líkast til.
Baugstíðindi
Stórkostlegir blaðamennirnir þarna á Fréttablaðinu. Framan á fréttablaðinu í dag er sagt frá 2ja ára Þjóðverja sem stakk móður sína af og var pikkaður upp af lögreglunni. Þegar hann var spurður nafns sagðist hann heita "mömmustrákur". Í fyrsta lagi er þetta náttúrlega ekki frétt heldur skrýtin saga. Þetta er því svona týpísk Moggasveitófrétt. Í öðru lagi enda þeir svo á því að segja frá því þegar móðir drengsins endurheimti son sinn og kalla það endurfundi feðginana????? Skrýtið - ég hélt þau væru mæðgin. Það er svo lítið að marka mig miðað við þær miklu mannvitsbrekkur sem prýða blaðamannaflota Fréttablaðsins. Horbjóður íslenskrar blaðamannastéttar er þarna saman kominn í sælureit mannorðsræningja, lygara og samviskuleysingja. Það eina sem ég tek mark á í Baugstíðindunum, DV og Fréttablaðinu, eru smáauglýsingarnar.

Enn af Birni
Ég ætti kannski að fylgjast betur með fréttum áður en ég básúna skoðanir mínar hérna á síðunni. Þegar allt kemur til alls réð Björn ekki annan af þeim tveimur sem Hæstiréttur mælti með í starfið. Kjánaprik getur þú verið Bjössi. Jæja, þá stendur fyrri úrskurður Ljós-Gíslans frá 8. apríl síðastliðnum en pistillinn frá 12. apríl dæmist ómerkur.
Pæling: Ætli Björn komist upp með að skipa núna annan af hinum tveimur í sæti Hæstaréttardómara en ekki konuna? Hvers vegna kærðu hinir tveir ekki? Má það kannski ekki af því þeir eru karlar eða af því að þeim var ekki mismunað á grundvelli kynferðis heldur hæfileika? Er þá ekki hægt að kæra Úrskurðarnefnd jafnréttismála eða a.m.k. lögin um störf hennar, og leggja þau fyrir hana sjálfa til úrskurðar? Það væru nú aldeilis fréttir til næsta bæjar og fréttamennirnir á Baugstíðindum gætu safnað málvillum í sarpinn með óvandaðri og ábyrgðarlausri umfjöllun sinni.
Tilvitnun dagsins
Lygi getur ferðast hálfa leið í kringum hnöttinn á meðan sannleikinn fer í skóna sína.
Mark Twain
Tilvitnanir
Hef ákveðið að setja eina tilvitnun á dag á þessa síða. Byrjum á nokkrum sem hafðar eru eftir Mark Twain.

Bankamaður er náungi sem lánar þér regnhlífina sína í sólskini en heimtar hana aftur um leið og byrjar að rigna
Mark Twain

14. apr. 2004

Boltinn
Óáhugsömum er bent á að færa sig neðar.
MUFC rétt marði sigur gegn slöku liði Leicester í gærkvöldi og þurfti ekki ómerkari markaskorara en Gary Neville til að sökkva baráttuglöðum en hæfileikalausum leikmönnum Leicester. Ronaldo átti enn eina skínandi frammistöðuna, a.m.k. í seinni hálfleik sem ég horfði á með öðru auganu á meðan ég át kvöldmat. Reyndar átti Jón Gengill (Ian Walker) frábæran dag í markinu hjá Leicester og geta félagar hans þakkað honum að sigur MUFC varð ekki stærri
Af öðrum leikjum kom það á óvart að Inter skyldi detta út úr UEFA keppninni gegn Marseille sem nú hefur slegið út tvo af stærstu klúbbum Evrópu (Liverpool og Inter). Celtic datt líka út í kvöld fyrir Villareal en Valencia og Newcastle kláruðu sína leiki eins og við var að búast.
Mínir menn í Barca náðu baráttujafntefli gegn Real Betis Sevilla á útivelli eftir að hafa leikið manni færri í 55 mínútur og raunar tveimur færri á lokamínútunum. Þeir eru nú jafnir Deportivo í þriðja sæti en með lakari markatölu. Þeir eru hins vegar taplausir í sl. 14 leikjum sem verður að teljast frábær árangur í hinni sterku La Liga.

Önundur...
...segir frá skemmtilegu atviki varðandi viðrekstur á Þjóðarbókhlöðunni í dag. Þegar ég var að lesa fyrir jólaprófin í 6. bekk í MR á Þjóðarbókhlöðunni þá átti Sigurgeir bekkjarfélagi minn snilldartakta a.m.k. 2svar sinnum. Í annað skiptið bað hann okkur að hafa hljótt og hlusta vel. Síðan stóð hann upp, gekk fram í almenninginn þar sem pöpullinn las og rak við svo undir tók í hæðinni og raunar húsinu öllu. Við þetta braust út mikill hlátur og við hlógum náttúrlega manna mest. Í annað skipti kom hann með klósettrúlluhólk og rak við í hann. Síðan fangaði hann lyktina í hólknum, gekk með hana milli hæða og sleppti síðan lyktinni á félaga okkar. Og það virkaði. Það má því segja að Geiri hafi haldið uppi andanum í leshópnum með endalausu sprelli. Ætli maður væri nokkuð þar sem maður er í dag ef Geira hefði ekki notið við á sínum tíma? Hver veit?
Sumir minnihlutahópar...
...eru oft alveg hrikalega viðkvæmir fyrir því að gert sé grín að þeim. Á þetta sérstaklega við um fólk af öðrum kynþáttum og suma (alls ekki alla) samkynhneigða. Ég hef oft velt fyrir mér hvað veldur, því ekki verða lögfræðingar fúlir þegar maður segir lögfræðingabrandara og mér finnst brandarar um lækna, eiginmenn/kærasta, lítið fólk, hægrimenn, skeggleysingja, bringuháraleysingja og sveitamenn fyndnir en þó er ég allt þetta (eða verð fljótlega)
Mín kenning er sú að þetta hafi eitthvað með óöryggi að gera. Ég get svo sem skilið að mjög rætnir brandarar fari fyrir brjóstið á fólki en hvers vegna þessi hrikalega bræði yfir afbrigðilegri kímnigáfu eða skoðunum annarra. Ég bara skil þetta ekki. Hvers vegna þessi óseðjandi þörf fyrir viðurkenningu og virðingu fólks sem þessir hörundsáru einstaklingar hafa hvort eð er engan áhuga á að umgangast á nokkurn hátt? Ef einhverjum finnst ég ófullkominn á einhvern hátt, hlusta ég af athygli á það sem hann hefur að segja en hugsa síðan: “Þetta er nú meiri bjáninn”.
Hver veit? Kannski er það bara ég sem er svona skrýtinn að láta ekki kímnigáfu eða álit annarra fara fyrir brjóstið á mér. Er það kannski almennt hugarfar fólks að reyna að sannfæra aðra um eigið ágæti með rökræðum, bræði og almennum fúkyrðum um þröngsýni, fordóma og lummulegheit? Ekki veit ég það.
Nú finnst mér brandarar um blökkumenn, samkynhneigða, lækna, lögfræðinga, dverga, ljóskur og reyndar bara um allan andskotann oft á tíðum fyndnir. Þýðir það að ég beri ekki virðingu fyrir þessu fólki? Alls ekki því margir sem ég ber hvað mesta virðingu fyrir bera einhverja af ofantöldum mannkostum. Er það ekki einmitt málið að okkur finnst fyndið þegar einhver sér spaugilegu hliðina á fólki sem við þekkjum?
Galdurinn er bara að taka brandarana ekki persónulega heldur sjá það spaugilega í eigin fari og annarra. Ef þér finnst brandarinn ekki fyndinn er þér frjálst að hlæja ekki en það er óþarfi að úthúða þeim sem hafa öðruvísi kímnigáfu en þú því stundum eru þeir sterkustu bandamennirnir þegar þú mætir síðan raunverulegum fordómum.

12. apr. 2004

Just when I think you couldn't get any more stupid, you do something like this...
...and totally redeem yourself. Þetta er kannski notað í aðeins öðru og bókstaflegra samhengi hér en í originalnum en engu að síður hef ég skipt um skoðun á ummælum Björns Bjarnasonar um jafnréttislögin eftir að hafa lesið röksemdafærslu hans á heimasíðunni hans. Hann bendir þarna á töluvert marga galla í umfjöllun úrskurðarnefndar jafnréttismála og bendir jafnframt á það að hann hafi tekið ákvörðun sína út frá tilmælum hæstaréttar sem taldi tvo karlmenn jafnhæfa í starfið en báðir þóttu þeir hæfari en konan skv. Birni. Björn skipaði annan þeirra í starfið og tók því raunverulega ákvörðun út frá þeim upplýsingum sem hann hafði um hæfi einstaklinganna. Tek ofan af fyrir Birni fyrir greinargóð skrif og vel rökstudd en það er þveröfugt við þær stórkostlega ömurlegu fréttir sem berast af síðum Baugsblaðanna.

MUFC...
...stóðu sig ágætlega um páskahelgina og náðu sigri gegn Birmingham á útivelli eftir að Saha og Ronaldo höfðu skorað með skalla. Ótrúlegt að Ferguson skyldi samt hrósa Saha eftir leikinn því hann brenndi hátt á annað hundrað færum í leiknum - átti sinn alslakasta leik fyrir MUFC síðan hann kom í janúar. Hins vegar var gaman að sjá enn einu sinni hvað leikur minna manna breytist með innkomu hins unga Cristiano Ronaldo. Það gerist nú hvað eftir annað að þeir geta ekki rassgat en síðan kemur þessi snillingur inn á og reddar málunum. Ég er sannfærður um að á næsta tímabili á hann eftir að leika stórt hlutverk í upprisu MUFC þegar þeir hirða dolluna aftur af Rassenal mönnum.
Annar maður sem ég er orðinn mjög hrifinn af er hin tvítugi Darren Fletcher sem stóð sig frábærlega á laugardaginn. Darren byrjaði illa í haust en hefur verið að sækja verulega í sig veðrið og lék frábærlega á miðjunni á laugardaginn, barðist vel og átti frábærar sendingar inn á milli. Það er líka gaman að sjá Skerið komið á ferðina aftur. Ég er sannfærður um það að það hefur miklu frekar verið fjarvera hans en salan á Beckham sem kostaði Unitedliðið svona mikið á þessu tímabili. Menn eru kannski búnir að gleyma því að þegar Beckham var meiddur í fyrra kom frábært skeið frá mínum mönnum þar sem Solskjær lék eins og engill á hægri kantinum.

Jæja
Lesturinn kallar og ég verð að svara. Verð að klára nýrun og helminginn af innkirtlunum í dag. Þessi leti gengur ekki lengur.

8. apr. 2004

Umfjöllun um GB
Mér þykir rétt, í ljósi umfjöllunar minnar um GB hér að neðan, að taka það fram að færslan endurspeglar eingöngu skoðun Geislans og er því ekki endilega hægt að rökstyðja á annan hátt en: af því bara. Þeim sem finnst að sér vegið er bent á að hafa samband í síma 543-1000 þar sem tekið verður við kvörtunum í númeraðri stafrófsröð.

Halldór Benjamín...
...frændi minn bauð til vandaðrar teiti í gær í tilefni af aldarfjórðungsafmæli sínu sem bar þetta árið upp á 5. apríl. Við erum fjórir frændur á þessum aldri og tveir okkar tókum okkur saman og gáfum greifanum eðalviskí, 2 L af súrmjólk og púðursykur. Er gjafarþeganum í sjálfsvald sett hvort hann notar hina súru mjólk sem bland eða þynnkubana en ég hef grun um að viskí bragðist betur í súrmjólk en eintómt. Eða eins og vitur maður sagði einhvern tíma er hann hafði unnið viskíflösku í golfmóti: "Oj! Ég er hættur við að vinna. Viskí er vibbi." Svo mörg voru þau orð.

Andreas unglingur Bergmann...
...bróðursonur minn og mikill snillingur átti reyndar afmæli í gær og varð titturinn 14 ára. Veit reyndar ekki hvers vegna ég kalla hann titt því hann er líklega orðinn stærri en ég og getur líklega tekið mig í bóndabeygju með annarri á meðan hann rústar mér í sjómann með hinni. Hann fær innilegar hamingjuóskir Geislans.

Björn Bjarnason...
...er búinn að missa það. Hann er farinn að dissa fjögurra ára gömul lög með því að kalla þau "barn síns tíma". Yfirleitt nota menn þetta orðalag um eitthvað sem var í tísku aftur í grárri forneskju eins og kraftgallana um 1990 eða sítt að aftan í kringum 1985. En Björn hefur svo sem rétt á sinni skoðun og greinilega eru margir sammála honum. Það merkilega er þó að þrátt fyrir að greyin úr Feministaklíku Garðarshólma (sem er svo gamaldags að það hæfir ekki að kenna það við Ísland sem er miklu nútímalegra og yngra hugtak) hafi alla samúð veraldarinnar með sér, jafnvel meiri en Saddam greyið, þá tekst þeim ekki að koma almennilega fyrir í sjónvarpi. Greyið sem kom þarna í Kastljósið í gær er enn föst í þessu svokallaða "kvenréttindabaráttuvælukjóasamtakabullshitti". Af hverju berst þetta fólk ekki bara fyrir almennum mannréttindum því það eitt að kalla þetta kvenréttindi ber vott um misrétti kynjanna. Það eina jákvæða við jákvæða mismunun er það að það dettur ekki nokkrum manni í hug að hlusta á svoleiðis mjálm. Ef það eru tveir jafnhæfir einstaklingar sem sækja um stöðu, annar karl, hinn kona, þá hlýtur sá sem ræður einstaklinginn að láta huglægt mat sitt ráða. Það er bara eðlilegur réttur þess sem rekur fyrirtækið.
Að því sögðu þá er hins vegar greinilegt að í þessu máli hefur verið brotið á rétti konunnar - ekki vegna þess að hún er kona og reyndar líklega síst þess vegna - heldur vegna þess að hún er einfaldlega miklu hæfari (miðað er við óskeikulan fréttaflutning Íslenska útvarpsfélagsins) ef maður skoðar reynslu, menntun og fyrri störf. Það er það sem á að nota í þessu máli og það er raunar það sem hún hefur verið að halda fram eftir því sem ég kemst næst. Fjölmiðlar og kvenréttindakellur hafa hins vegar snúið þessu upp í eitthvað svona strákarámótistelpumstríð eins og í sex ára bekk og það verður allt í einu miðpunktur umræðunnar. Eins og það geri þessa ágætu konu eitthvað betri hæstaréttardómara að hún skuli ekki hafa kylfu og kúlur.
Bjössi greyið hefur líklega farið veggmegin fram úr rúminu í gærmorgun og vankast eitthvað við það.

7. apr. 2004

Gettu betur
Það er allt að verða vitlaust út af þessu máli og menn útnefna bestu menn sögunnar á bloggsíðum hér og þar um bæinn. Ætli sé ekki best að ég nefni þá menn sem ég hef haft mest dálæti af í gegnum tíðina.

1) Besti maður í sögu GB er að mínu mati enginn annar en Sæmundur Borghyltingur sem vann næstum hljóðnemann upp á sitt einsdæmi fyrir nokkrum árum. Ótrúlega fróður drengur en jafnframt eitthvað svo viðkunnalegur og vel gerður náungi. Hann er languppáhalds hjá mér.
2) Sverrir Guðmundsson er klárlega næstbesti maðurinn að mínu mati og það er eitt sem hann hefur fram yfir alla aðra í þessari keppni fyrr og síðar en það er gífurlega víðáttumikil þekking á Íslandi - landafræði, staðháttum, þjóðsögum, sögu, bókmenntum, listum og dægurmálum. Það hefur engum tekist að toppa þetta en...
3) ...Sverrir Teitsson var ekki langt frá því. Sverrir er ekki beinlínis allra og vægast sagt með umdeildustu keppendum í sögu GB en djöfull var hann fróður mannandskotinn.
4) Haukur Eggertsson var rosalegur á sínum tíma og held ég að hann verði að fá sinn sess á þessum lista enda tókst honum að draga Versló þrjú ár í röð í úrslit með afar slaka kantmenn. Haukur er einn af þessum spurningakeppnissúpernördum sem veit allan andskotann en gallinn var sá að svörin hans voru svona einsatkvæðissvör - var ekki sérlega góður að giska í botnlangaspurningum.
5) Kjartan rauði sem var í MR liðinu með Stefáni Pálssyni á sínum tíma finnst mér koma sterklega til greina ásamt Viðari félaga mínum. Get ekki gert upp á milli þeirra. Þeir voru svona menn sem gátu farið á bjölluna og haldið ræður um allan andskotann. Það kom ekki alltaf rétt svar en mikið rosalega voru þeir samt góðir.

Besti í hraðaspurningum:
Bræðurnir Ágúst og Arnór Haukssynir eru bestu hraðaspurningamenn í sögu keppninnar að mínu mati en fast á hæla þeirra kemur Stebbi Páls.

Bestur í að tapa:
Haukur Eggertsson tapaði í þremur úrslitum í röð. Það held ég að enginn annar hafi leikið eftir.

Ofmetnustu menn sögunnar í minningunni:
Sverrir og Ármann Jakobssynir voru fyrstu spurningaubernördarnir í keppninni og margir minnast á þá í samhengi við bestu menn keppninnar en þeir kæmust varla í liðin í dag með þá þekkingu sem þeir höfðu þá. Hins vegar væri örugglega hægt að gera þá ofurmannlega með nútíma þjálfunaraðferðum.

Steinþór Borghyltingur ku vera mikið ofurmenni en ég hef því miður bara séð eina keppni með honum. Hann kemst kannski á næsta lista.

Boltinn
Góður dagur í dag. Tvö mestu hrokalið sögunnar féllu út úr meistaradeildinni í kvöld. Í kvöld var gott kvöld. Vona að ég fái að sjá Chelsea og Milan í úrslitum og þá verður erfitt að halda með mínum mönnum í Milan gegn Feita víkingnum. Ég er nú einu sinni Víkingur.

4. apr. 2004

Dufþakur gegn Boltafélagi Reykjavíkur
Spilaði minn fyrsta leik með mínu nýja félagi í gær. Var leikið gegn Boltafélagi Reykjavíkur sem yfirleitt er kallað B.R., líklega vegna þess að það hæfir stafsetningarhæfileikum ákveðinna leikmanna betur. Annars voru þetta flestir ágætis drengir og ekki hægt að kvarta yfir þeim sem mótherjum en inn á milli voru þvílíkir hálfbjánar. Geislinn hefur nú verið þekktur fyrir að senda dómaranum tóninn en hefur samt aldrei á ævinni heyrt annað eins kjaftbrúk gagnvart dómara.
Ónefndur leikmaður liðsins bauð dómaranum til dæmis að koma flautunni hans fyrir í rassgatinu á honum og annar kallaði dómarann þroskaheftan aumingja. Sem betur fyrir (lesist því miður) heyrði dómarinn ekki til þeirra og þeir sluppu því með skrekkinn.
En þá að leiknum. Geislinn hóf leikinn og lék í framlínunni við annan mann í leikkerfinu 4-4-2. Það gekk ágætlega til að byrja með og þegar fyrri hálfleikur var vel á veg kominn tókst okkur að setja mark þegar Jónatan nokkur vann boltann fyrir utan teig, prjónaði sig í gegnum vörnina og setti boltann í hornið af stakri yfirvegun. Honum leist hins vegar ekkert á að vera yfir og því jafnaði hann fljótlega fyrir B.R. með glæsilegum skalla utan af kanti. Við þetta fór eitthvað úrskeiðis í leikkerfi okkar og B.R. gekk á lagið og setti tvö mörk og fengu þeir að auki vítaspyrnu sem þeir misnotuðu reyndar.
Fyrir leikhlé tókst okkur reyndar að klóra í bakkann þegar Heiðar félagi minn í framlínunni komst inn í sendingu til markvarðarins og setti boltann í netið. Staðan í hálfleik var því 3-2 og má segja að við höfum verið óheppnir að skora ekki fleiri mörk en kannski líka að fá ekki á okkur enn fleiri.
Í hálfleik var ákveðið að skipta um taktík og datt ég því niður á hægri kantinn og kantmaðurinn fór inn á miðjuna í leikkerfið 4-5-1. Við þetta gjörbreyttist leikur Dufþaks og við tókum fljótlega völdin á miðjunni. Sóknir B.R. einskorðuðust við örfáar hættulegar skyndisóknir en annars lágum við töluvert á þeim. Um miðjan seinni hálfleik bar pressan árangur og við náðum að jafna eftir einfalda sókn upp hægri kantinn, háa fyrirgjöf og einfalda afgreiðslu Heiðars. Við sóttum síðan látlaust eftir þetta og áttum nokkur hálffæri og örfá dauðafæri en tókst ekki að skora þannig að leikar enduðu 3-3.
Líklega voru þetta sanngjörn úrslit en það var svekkjandi að klára þetta ekki miðað við hvað við vorum með mikla yfirburði í seinni hálfleik.
Sjálfur átti ég lélegan leik enda kannski ekki beinlínis í leikæfingu, hef ekki spilað á stórum velli í tæpt ár. Lagði þó upp síðasta markið okkar og átti nokkra spretti en sinnti varnarhlutverkinu illa á kantinum og þarf að bæta það. Það kemur vonandi með forminu.

Mínir menn...
...tóku Rassenal í Háboruna í gær og gerðu drauma þeirra um þrennuna eftirsóknarverðu að engu. Það var gaman. Mínir menn voru að sjálfsögðu miklu betri sem endranær. Gaf mér ekki tíma til að horfa á leikinn.
Mínir menn í Barca halda áfram góðu gengi sínu og hafa nú ekki tapað í tólf leikjum í röð. Þeir eru farnir að nálgast toppliðin hratt en líklega enda þeir í fjórða sæti og rétt slefa inn í Meistaradeildina.

Mótsögn dauðans (og Heiðar bullar)
Ríkissjónvarpið hefur hækkað afnotagjöldin en einnig ætla þeir að hætta því eina sem þeir gera vel – sýna beint frá alþjóðlegum íþróttaviðburðum. Heiðar telur þetta góðar fréttir en ég skil ekki í hvað peningarnir eiga að fara. Kannski á að bæta um betur í ömurlegri innlendri dagskrárgerð eins og Atinu og Mósaík.

3. apr. 2004

Önundur fer með rangt mál
Önundur heldur því fram að ég hafi brugðist ókvæða við aprílgabbi hans í gær en það er ekki rétt. Raunar fannst mér það mjög skondið í sínum 10 ára húmor en mér tókst kannski ekki að koma því almennilega til skila í gegnum MSN. Af skrifum Önundar mætti ætla að ég taki mig mjög hátíðlega í læknisleiknum en svo er ekki. Ég held ég hafi verið fyrstur manna til að átta mig á að ég er fábjáni inn við beinið og ákvað bara að sætta mig við það í staðinn fyrir að vera að rembast eitthvað. Á eftir líður mér ágætlega, það er nefnilega ekkert svo slæmt að vera fábjáni. Verst að Önni er ekki búinn að átta sig á þessu.