Skandall!!!
Mínir menn voru heppnir að tapa ekki stærra í viðureign sinni við Stuttgarðsmenn í gær. Ekki nóg með að eina mark þeirra kæmi úr vægast sagt vafasamri vítaspyrnu heldur varði Tim Howard markvörður United oft á tíðum vel, m.a. vítaspyrnu undir lok leiksins. Það sem var verst í leiknum í gær var hvað vörnin var slök og það er helvíti slappt að halda hreinu marki í fimm vikur og fá svo á sig þrjú gefins mörk í tveimur leikjum. Reyndar verð ég að segja það Stutturunum til hróss að þetta voru klínískar kláranir (clinical finishing) í báðum tilfellum og m.a.s. vítaspyrnan var nokkuð góð, markvarslan var bara betri. Nú lítur út fyrir það að við verðum að ná jafntefli í Skotlandi gegn Rangers og vinna heima gegn bæði Stuttgart og Rangers til að vera öruggir áfram. Það eru þó góðar líkur á því að United taki þess leiki og kannski útileikinn gegn Panathinaikos. Sjáum til.
Af öðrum leikjum kom það mér mest á óvart að Che₤$ky skyldi tapa fyrir Besiktas. Sá fyrri hálfleikinn og fannst þeir betri aðilinn framan af en skyndisóknirnar hjá Tyrkjunum voru stórhættulegar enda skoruðu þeir seinna markið úr einni slíkri og fyrra markið var nú bara snilldarlega útfærð aukaspyrna + lélegur varnarleikur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli