Boltinn
Mínir menn búnir að rétt sinn hlut aðeins á útivöllum í meistaradeild Evrópu eftir frækinn baráttusigur á Rangers í gær. United átti reyndar fleiri færi miðað við þær 60 mínútur sem ég sá en Rangers börðust vel og hefðu alveg átt skilið eitt stig. Það verður hins vegar ekki litið hjá því að Scholes átti að fá tvær vítaspyrnur á lokamínútunum, fyrst honum var brugðið af frábærum markverði Rangers og síðan þegar hann fór fram hjá varnarmanni Rangers stuttu seinna. Anders Frisk sem dæmdi leikinn annars óaðfinnanlega dæmdi hins vegar ekki neitt. Það kom þó ekki að sök því mínir menn unnu og verma því toppsætið í riðlinum ásamt Stuttgart.
Chelsea stóð einnig fyrir sínu í gær með baráttusigri gegn sæmilegu liði Lazio. Frank Lampard var enn einu sinni allt í öllu hjá Chelsea og fullkomnaði góðan leik sinn með frábæru marki í upphafi seinni hálfleiks eftir góðan undirbúning feita víkingsins og Adrian Mutu. Mutu setti síðan sjálfur sigurmarkið eftir gott samspil við Gronkjær.
Rassenal hefur hins vegar fatast flugið enn einu sinni í Evrópu og nú síðast mistókst þeim að leggja Dynamo í Kænugarði. Þeir eru því í afskaplega slæmum málum með aðeins eitt stig eftir 3 leiki og eiga auk þess eftir að fara til Milano í viðureignina gegn Inter. Það sýnir enn einu sinni að þetta er ágætis lið í deildinni en þeir eiga bara því miður ekkert erindi í Meistaradeildina ennþá.
Pósturinn minn
Maðurinn/Konan sem ber póst í húsið til okkar er á einhverju trippi. Í fyrsta lagi kemur póstur dagsins yfirleitt ekki fyrr en seint og síðar meir auk þess sem það virðist sem hann geymi eitt og eitt bréf heima hjá sér í nokkra daga áður en hann ákveður að leyfa manni að sjá það. Þetta kemur sem betur fer ekki að sök þar sem ég fæ alla mikilvæga reikninga inn á heimabankann minn líka. Það er hins vegar verra með tímaritin sem ég er áskrifandi að því þau berast stundum ekki fyrr en nokkrum vikum of seint. Þetta gæti reyndar verið vandamál hjá dreifingaraðilanum úti en ég verð að álykta að það sé ólíklegt því þegar ég bjó í Eskihlíðinni hjá settinu voru þau oft komin fyrir raunverulegan útgáfudag og aldrei seinna en á mánudegi (útgáfudagurinn er á fimmtudegi). Ég er nú ekki enn orðinn það óhress með þetta að ég kvarti - þau skila sér nú öll þegar allt kemur til alls.
Próflestur
Ég er að lesa fyrir próf í endurhæfingarlæknisfræði og mér finnst það ekki gaman. Í fyrsta lagi er þetta ótrúlega leiðinlegt efni og í öðru lagi var ég að fá email frá kennaranum sem sagði að þetta yrði skítlétt próf. Honum finnst víst ekki taka því að kenna okkur svona víðfemt fag á meðan við erum enn í læknadeild og verð ég að segja að ég er sammála honum, sérstaklega þar sem þetta er ein skitin eining eða kannski ein og hálf. Best að geyma svona lagað þar til fólk er búið að ákveða að leggja þetta fyrir sig í lífinu. En ætli það sé ekki rétt að ég haldi áfram að læra svo ég fái ekki falleinkunn í þessu. Kannski maður reyni að komast eins og einu sinni eða tvisvar yfir efnið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli