Viðbrögð
Menn hafa sýnt viðbrögð við úrhellinu frá Geislanum í gær. Menn eru ánægðir að ég skrifa um annað en fótbolta en því miður er það nú svoleiðis að mér finnst fátt annað merkilegt gerast þessa daganna. Ég ætla því að halda áfram venju minni og tjá mig um leiki dagsins.
liverpool-ARSENAL
Mikið held ég að það sé erfitt að halda með þessu liði. Þeir geta bara ekki rassgat og ég held að Húlli verði fokinn fyrir áramót með þessu áframhaldi. Ég sá reyndar ekki leikinn þar sem ég var að spila fótbolta sjálfur venju samkvæmt en ég las á netinu að þetta hefði bara verið gerning í seinni hálfleik. Fyrir fáfróða skal tekið fram að orðiði gerning er nafnorð sem lýsir þeim verknaði þegar mönnum er rúllað upp í knattspyrnuleik. Mun þetta dregið af orðatiltæki óheflaðra manna er lýsa því hvernig brotið er á rétti endaþarms þess sem er gernaður. Einnig er til sögnin að gerna, dæmi: Liverpool var gernað af Arsenal árdegis.
Mínir menn
Mér fannst mínir menn skila sínu í dag en það var svo sem ekkert aukalega. Scholes og Fletcher áttu góðan leik og Silvestre var traustur í vörninni. Þeir spiluðu reyndar rúman helming leiksins einum fleiri eftir að markmanni Birmingham var vikið af leikvelli fyrir að bregða Scholes innan teigs. Sem aftasti maður á hann skv. reglum að fá rautt en mér finnst nú alltaf helvíti hart að dæma bæði víti og reka markmannin út af. Þetta var þó samkvæmt bókinni og ekkert hægt að segja við því. Rúðan virðist komin með vítakjarkinn aftur og Scholes er allur að koma til eftir meiðslin. Ég hef nú heldur ekki miklar áhyggjur af Beckham-leysinu eftir að hafa séð þennan Fletcher í leikjum upp á síðkastið. Hann verður fullgildur staðgengill stúlkunnar með hanakambinn. Annars er gaman að sjá hvað hún stendur sig vel hjá Real og ég held raunar að enginn hafi búist við því að hún fyndi sig svona vel svona fljótt. Alltaf gaman þegar gamlir MUFCarar standa sig annars staðar - bara ekki þegar það er á móti United.
Í gærkvöldi...
...komu hér bekkjarfélagar mínir til lítils teitis í tilefni af íbúðarkaupum okkar Eddu. Það var nú reyndar mun fámennara en ég bjóst við en það er svo sem ekki slæmt í ljósi stærðar íbúðarinnar. Við fórum síðan níu saman í bæinn en fljótlega fór að þynnast hópurinn og á endanum vorum það bara við Árni Grímur og Sunna sem vorum eftir. Gamanið barst um Kaffibarinn, Pravda og að lokum enduðum við á 22 og húktum þar til tæplega 6 en þá gáfumst við Sunna upp og fórum heim. Árninn ætlaði að klára bjórinn en líklega hefur hann hellt einhverju meira í sig því hann var hvergi sjáanlegur í boltanum í morgunn. Kvöldið var skemmtilegt og þakka ég kærlega fyrir þær gjafir sem við fengum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli