Hannesar útskrifast og efni helgarinnar
Á laugardaginn var mikið um að vera. Um morguninn fór í stysta próf sem ég hef nokkurn tíma farið í. Þetta var sem sé þriggja tíma próf frá 9-12 en þeir allra handlötustu voru farnir að rífast yfir því að fá ekki að yfirgefa stofuna þegar u.þ.b. 45 mín voru liðnar af próftímanum. Þá var ég löngu búinn með prófið enda ófær um nautaskít (incapable of bull shit) á skriflegum prófum. Ég samdi því nokkrar vísur um sjálfan mig og aðra á meðan ég beið eftir að fá að fara en þar sem ég hef ekki mikið dálæti á sjálfum mér sem skáldi hef ég ákveðið að birta þær ekki hér. Strax fór ég í boltann og kenndi drengjunum sitthvað til gamans og til gagns áður en ég skellti mér í ÆKÍJA eða ÍKEA eins og við Íslendingar köllum það. Þar spókuðum við Edda okkur og keyptum m.a. kuta til að brytja niður steikina sem er á borðum hér á hverju kvöldi.
Við heimkomu var kveikt á imbanum og fylgst með leikjum dagsins með öðru auganu á meðan ég reyndi að klára Colin McRae 2.0 sem er snilldarlegasti og erfiðasti bílaleikur sem ég hef spilað fyrir utan kannski Colin McRae 3.0. Um kvöldið var stefnan síðan sett á útskriftarveislu þeirra öðlinganna Sverris Bjarna, Magnúsar nafna og Inga Steinars sem voru eins og fyrr sagði allir að útskrifast með B.A. í viðskiptafræði. Til hamingju með það drengir. Útskrifarpartýið var haldið á frægum sögustað Herraklúbbsins Hannesar og mættu þar allmargir félagar og tóku á því í drykkjunni. Á eftir löbbuðum við Edda heim í kyrrðinni og það var hreint ágætt kvöld. Á sunnudeginum kom síðan í ljós að fleiri hefðu betur farið að okkar fordæmi því afspyrnuslök mæting var í sunnudagsboltann þar sem aðeins 6 mættu. Við létum það ekki á okkur fá og spiluðum í góðan klukkutíma þar sem Jón Ingi öskraði hendi í hvert skipti sem hann tapaði tæklingu eða missti boltann. Erfitt að vera tapsár.
Á sunnudaginn var ég síðan ógeðslega duglegur því ég bakaði Betty Crocker amrískar pönnsur með ís, rjóma og sýrópi fyrir settið og tengdó sem sporðrenndu þessu ásamt ostum og kexi. Það var voðalega notalegt en síðan settumst við Edda niður og lágum eins og slitti yfir tveimur ræmum. Dómar fylgja að neðan.
Í dag...
...byrjaði ég síðan á kúrsus í skurðlæknisfræði. Það er alltaf erfitt eftir langt skeið með tiltölulega frjálsri mætingu að taka átta vikna kúrs með 95% mætingarskyldu og mætingu kl. 8.00 á morgnanna eða fyrr eftir atvikum. Þetta var reyndar ágætis dagur - sá eina aðgerð sem stóð hátt á fjórða tíma, fékk mér hádegismat, svo á fund og síðan heim. Lýsing aðgerðarinnar væri síst til að hressa við matarlyst lesenda minna eftir erfiða helgi enda ætla ég ekki að fara út í slíkar lýsingar hér. Merkilegt hvað mér finnst gaman að fara í aðgerðir miðað við það að ég hef lítinn sem engan áhuga á að framkvæma þær sjálfur. Sennilega finnst mér heillandi að sjá líffærafræðina svona up, close and personal. Gaman að sjá þetta lifandi og virkandi en ekki í hundrað og fimmtíu ára gömlum líkum í myrkviðum læknagarðs.
Boltinn
Mínir menn stóðu sig aldeilis ekki um helgina. Skíttöpuðu á heimavelli fyrir Fulham og voru heppnir að Rassenal tapaði stigum gegn Charlton. Ég hugga mig við það að United eru alltaf betri eftir áramót og því er 2ja stiga forysta Arsenal ekki eitthvað sem ég er hræddur við. Þeir eru nú einfaldlega þannig að um leið og þeir tapa leik þá verða þeir nokkrir á fáum vikum. Þeir virðast alltaf taka nokkra leiki í röð þar sem allt gengur á afturfótunum, þó það virðist ætla að einskorða sig við meistaradeildina í vetur. Ég veit reyndar ekki hvort það sé eitthvað frábært að þeir detti þaðan út strax. Það verður auðvitað voða gaman að stríða Möggu og Svenna systkinum Eddu sem eru harðir Nallar eins og pabbi en það er bara gott fyrir úrvalsdeildina að Arsenal hangi inni í CL. Vonum að þeir komist alla vega í UEFA cup.
The Banger Sister´s
Tókum þessa mynd í gær. Ekki get ég nú sagt að þessi mynd sé eitthvað meistaraverk en hún skartar tveimur frábærum leikurum og einum frægum í viðbót. Geoffrey Rush fer reyndar á kostum í þessari mynd en fær alltof litla skjástund til að lyfta myndinni á hærra plan. Ágætis tímasóun ef þið þurfið að sóa tíma. Fær þrjá rúllubolta í mitt markið fyrir fáeina góða brandara og góðan boðskap.
NARC
Með gömlu brýnin Ray Liotta og Jason Patrick í fararbroddi kom þessi mynd þægilega á óvart. Ég er ekki að segja að þetta sé mynd sem allir verði að sjá en fléttan er góð og plottið er ekki eins fyrirsegjanlegt og maður heldur. Flottur endir, ekki hefðbundnar amrískar gleðilyktir og því er þessi mynd vel þess virði að kíkja á ef ekkert annað er haft fyrir stafni. Fær tvo bolta í stöng og inn og tvö í slánna og inn. Sá fimmti hittir utanverða hægri stöngina af þrjátíu metra færi.
Góðar stundir
Engin ummæli:
Skrifa ummæli