6. okt. 2003

Jahá!!
Bloggið mitt er greinilega lesið af fleirum en ég hélt, a.m.k. hef ég fengið töluverð viðbrögð við skrifum mínum um Heimdallarkosningarnar og þá sérstaklega frá stuðningsmönnum Deiglunnar sem telja mig svarinn óvin sinn. Menn virðast halda að ég sé einhver stuðningsmaður Hugsjóna en það er öðru nær.
Reyndar beindust spjót mín kannski ívið meira að þeim Deiglumönnum en það er nú fyrst og fremst vegna þess að ég er ekki sammála þeim í ýmsum grundvallaratriðum - skoðanabræður mínir hafa kannski fyrst og fremst verið á hinum væng Heimdallar. Það þýðir þó ekki að mér sé eitthvað persónulega illa við Deiglumenn - langt í frá - enda á ég þar fjölmarga gamla félaga t.d. Tomma, Ingunni, Ásdísi, Arnar Þór, Eðvarð og Soffíu svo einhverjir séu nefndir. Mér finnst ekkert skárra að Hugsjónamenn nýskrái fólk í Heimdall rétt fyrir kosningar, svo ég tali nú ekki um ef það kemur upp úr dúrnum að þeir hafi misbeitt valdi sínu.
Ég get nú reyndar viðurkennt það fyrir lesendum mínum að ég var sjálfur skráður í Heimdall undir svipuðum kringumstæðum fyrir 4 árum síðan til að kjósa Sigurð Kára Kristjánsson formann S.u.s. Ég var nú svo heppinn að kosningarnar drógust á langinn þá og til að missa ekki af Herjólfi sleppti ég kosningunni (missti reyndar samt af Herjólfi en það er önnur saga). Málið er bara það að hvort sem það er leyfilegt eða ekki þá finnst mér ekki lýðræðislegt að vinna kosningarnar á nýjum félögum - hvort sem það eru skoðanabræður mínir sem gera það eða hinir. Það er ekkert gaman að vinna með svindli og enn leiðinlegra að tapa vegna þess. Leiðinlegast er þó að tapa þrátt fyrir að hafa svindlað því þá situr maður bæði uppi með samviskubitið og svekkelsið yfir að tapa.
Ég er því raunverulega að segja hér að hvorug fylkingin mun framar fá atkvæði mitt. Munurinn á fylkingunum er hins vegar sá að af því litla sem ég hef séð frá hvoru framboði fyrir sig þá líst mér betur á skoðanir Hugsjónamanna. Ég veit hins vegar alveg að þeir hafa oft leikið þann leik sjálfir að nýskrá félaga og því eru þeir ekkert skárri en Deiglumenn nema kannski að því leyti að þeir eru ekki eins "góðir" að veiða nýja félagsmenn. Bottom-line: Hvorugt framboðið er boðlegt til að leiða Heimdall sem á að vera félag lýðræðissinnaðra hægri manna í höfuðborginni.
Deiglumenn hafa reynt að verja sig með þeirri fáránlegu röksemd að löglegt sé að skrá sig í félagið x dögum fyrir kosningar. Þetta snýst bara ekkert um lög og reglur. Málið snýst um ákveðið siðferði og hvorugt framboðið hefur það. Þau hafa látið hvort annað draga sig niður á plan sem í besta falli hefur þekkst í sósíalískum félagskap í gegnum tíðina. Lifið heil - helst ekki í Heimdalli.

Engin ummæli: