Jæja!
Þá hefur Danmörk verið sótt heim. Við Edda vorum bæði að koma til Danmerkur í fyrsta skipti á ævinni (reyndar er ég öllum hnútum kunnugur á Kastrup þar sem ég hef millilent þar 2svar áður). Það kom mér á óvart hvað það er mikið af múrsteinum í Danmörku. Svo er talað um að Kínamúrinn sé eitthvað byggingarafrek. Það hljóta að liggja miklu fleiri vinnustundir í öllum þessum múrsteinshúsum. En hvað um það - ætli ég verði ekki að segja ykkur alla sólarsöguna?
Miðvikudagurinn 15. október
Dagurinn byrjaði snemma eða kl. 4.00 árdegis eftir tveggja tíma svefn. Lögðum af stað út á flugvöll um fimmleytið en höfðum viðdvöl hjá foreldrum hennar Eddu þar sem Valdi tengdó ætlaði að skutla okkur út á flugvöll og bíllinn okkar ætlaði að vera í pössun. Við vorum kominn til Keflavíkur um kl. 5.45 og fyrsti maðurinn sem ég sé í Leifsstöð er Halldór Benjamín frændi minn sem var á leið til Köben með sömu vél. Við sátum því saman í vélinni á leiðinni út og spjölluðum heilmikið saman á meðan Edda reyndi að jafna sig á svefnleysinu. Við komuna til Köben tóku Elna og Áslaug vinkonur Eddu á móti okkur og að sjálfsögðu var stefnan tekin beint á Strikið. Við skoðuðum Burger King við Ráðhústorgið og síðan skoðaði ég tóbaksbúð sem Óli rass hafði bent mér á. Þar var að sjálfsögðu hægt að fá neftóbak og því var einu af þremur markmiðum ferðarinnar náð. Síðan tók við verslunarráp og stelpurnar skoðuðu H&M alveg í tætlur til að undirbúa jarðveginn fyrir fimmtudaginn sem var hinn raunverulegi verslunardagur skv. deiliskipulagi ferðarinnar. Teygjudeild H&M hefur t.d. þurft að loka tímabundið á meðan nýr lager er keyptur, eftir að Edda gekk þar berskerksgang og keypti upp vistir deildarinnar. Ég gat þó fundið mér eitt og annað og keypti húfu, vettlinga, trefil og sokka til að ég yrði ekki úti á meðan ég beið eftir stúlkunum. Síðan fórum við í siglingu um sýkin þarna í miðborg Köben þar sem maður siglir frá Nyhavn sem ég held að hafi einu sinni verið hinn raunverulegi miðpunktur Köben (þ.e. þar var hægt að gerast knapi gegn vægu gjaldi). Siglingin tók tæpa klukkustund og var mjög skemmtileg. Á eftir skoðuðum við svo Amalienborg sem er höllin í Köben. Nú var dagur að kveldi kominn og því kominn tími á öl og mat. Settumst inn á veitingastað sem ég man ekki í svipinn hvað heitir en hafði ítalskt yfirbragð. Þjónninn sem var suðrænn í útliti talaði hrafl í íslensku og fær plús fyrir það. Át þarna fyrirtaks lasagna bolognese sem fær hiklaust 3 bolta í skeytin og inn. Síðan var ferðinni heitið í herbergi sem Edda Rún og Sunna vinkonur þeirra meyja hafa til umráða í Köben ásamt Alexöndru sem margir muna eftir syngjandi í auglýsingu mjólkursamsölunnar. Þar spjölluðum við svolítið saman en fljótlega kom Óli í heimsókn og höfgi færðist yfir mannskapinn.
Fimmtudagurinn 16. október
Erfiður dagur. Byrjaði með því að ég vaknaði við mikið tak sem ég hafði fengið af því að sofa á allt of mjúkri dýnu. Fljótlega dreif liðið sig fram úr og stefnan var tekin á eitthvað ætilegt - bara hvað sem er. Neyðin rak okkur inn í fyrirtaksbakarí þar sem ég fékk mér eina allra bestur samloku sem ég hef á ævinni bragðað. Síðan var förinni heitið á Kastrup aftur að sækja Helgu og Sverri sem komu með sömu vél og við bara deginum seinna. Ferð þeirra gekk stóráfallalaust og við tókum stefnuna strax á Strikið. Nú tókst mér að versla aðeins meira enda kominn með samherja í Sverri. Við gengum frá okkar málum tiltölulega snögglega og verslaði ég frakka, skyrtur og peysu þann daginn. Ég hafði síðan séð búð á ráfi okkar kvöldið áður þar sem seldur var sérlega fallegur bolur sem mig langaði í. Ég leitaði að þessari búð kvöldið eftir en fann hana ekki fyrr en Elna vísaði mér leiðina. Kom þá í ljós að búðin var flutt og þurfti ég því aftur að finna hana. Það tókst að lokum örfáum mínútum fyrir lokun og nú er bolurinn minn ásamt öðrum flottum sem ég sá inni í búðinni. Dagurinn var mun bærilegri þar sem nú hafði ég liðsmann þegar mér leiddist þófið í verslunarferðum stúlknanna og við gátum því látið okkur hverfa og fengið okkur öl. Nýttum við okkur það svolítið en þó líklega of lítið. Um kvöldið var síðan borðað á RizRaz sem er í miklu uppáhaldi hjá stelpunum. Ég asnaðist til að fá mér einhverja steik þarna sem var nú ekki beysin. Hins vegar var svona buffet sem fylgdi og samanstóð af fersku grænmeti, pasta og allskyns heitum og köldum réttum og þótti það mjög gott. Með okkur borðuðu Stebbi striker og Halldóra kærastan hans sem eru við nám í Köben. Það var gaman að hitta félaga Hannes. Eftir matinn var tekin stefnan á Höfuðbanagarðinn þaðan sem lestin til Odense gengur. Ferðin tók hálfan annan tíma og náðum við Sverrir að hesthúsa hálfri koníak með dapurlegri tilraun stúlknanna til að hjálpa. Við vorum því orðnir hressir við komuna til Odense og vildum ólmir skella okkur á pöbb en það var fellt með meirihluta atkvæða þannig að við smökkuðum bjór heima hjá Gollum frameftir nóttu.
Það var rosalega notalegt að koma loksins til Golla og Slaugu. Þau búa í rúmgóðri íbúð steinsnar frá miðborg Odense. Mér fannst rosalega flott hjá þeim. Maður hefur svona mental picture að íslenskir námsmenn erlendis lepji dauðann úr skel en það er sko öðru nær því þau hafa komið sér vel fyrir. Það var því hrikalega notalegt að leggja höfuðið á koddann þarna um nóttina í rúmgóðu stofunni hjá Gollum og Ásláki þar sem við sváfum fimm í flatsæng - ég, Edda, Elna, Helga og Sverrir.
Föstudagurinn 17. október
Byrjaði snemma með bakarísferð um ellefuleytið þar sem stelpurnar fóru fram á eitthvað ætilegt. Síðan var ferðinni heitið niður í miðbæ þar sem tekin var skoðunarferð undir leiðsögn Ingólfs og Áslaugar. Við skoðuðum meðal annars hjallinn sem H.C. Andersen fæddist í en Odense leggur mikið upp úr því að heiðra minningu þessa frægasta sonar síns. Það hafa þeir meðal annars gert með því að byggja gróðurhús aftan við húsið hans að hætti Íslendinga en þar inni á að vera mikið safn helgað þessum snillingi. Merkilegt að sjá gróðurhús í hverfi frá fyrri hluta nítjándu aldar. Þá voru Danir allir í gróðurhúsabissnessnum. Fljótlega bættist öðlingurinn Jakob Friðriksson í hópinn en hann er bekkjarbróðir okkar Golla og Áslaugar úr MR og hefur búið í Odense frá útskrift þar sem hann hefur lagt stund á sameindalíffræði. Hefur frami hans orðið svo gífurlegur að hann er þekktur um gjörvallt Fjón undir nafninu Jobbi Fruma. Það var mjög gaman að hitta Kobba almennilega en það hefur varla gerst síðan í árdaga. Síðan var að sjálfsögðu kíkt aðeins í búðir en fljótlega settumst við inn á veitingastað sem heitir Frank A og fengum okkur úrvalsborgara sem svipaði að sumu leyti til American Style en var þó ekki eins góður. Hann var samt mjög góður og fær 3 bolta í skeytin og einn í stöng og út. Þjónustan var hins vegar eitthvað í anda vítaspyrnu Davids Beckham gegn Tyrkjum - nema hvað hún fór langt undir markið. Við strákarnir drifum okkur síðan heim þar sem til stóð að við elduðum ofan í stúlkurnar og varð hin gífurlega flókni réttur appelsínukjúklingur fyrir valinu. Á eftir var síðan súkkulaðikaka að hætti hússins. Kobbi sá um kökuna, ég og Sverrir unituðum hænsnin og Golli verkstýrði öllu af stakri prýði. Úr varð frábær máltíð með frábæru fólki.
Fljótlega fóru fleiri Íslendingar að týnast í partýið og held ég að Gollum hafi boðið öllum Íslendingum á Fjóni heim þetta kvöld. Úr varð hið ágætasta partý sem stóð fram eftir kvöldi og síðan fórum við Sverrir, Helga og Edda á Boogie Night Club og skemmtum okkur ágætlega. Fórum þó fljótlega heim aftur og skemmtum okkur aftur fram eftir nóttu.
Laugardagurinn 18. október
Vöknuðum um ellefuleytið og drifum okkur í allþrif og morgunmat. Kobbi kom um hálftólf og hafði dagurinn verið skipulagður sem strákadagur. Elna átti afmæli og stelpurnar fóru saman í bæinn en við drengirnir byrjuðum á Go-Kart kl. 12. Þetta er flottasta gokart-braut sem ég hef séð því hún var úr einhvers konar gúmmíi þannig að veggripið var gífurlegt. Maður gat því keyrt nokkuð greitt og fórum við þrjár keppnir. Menn voru misbrattir fyrir þynnku og því gekk þeim misvel að hafa stjórn á bílunum. Farnar voru þrjár keppnir og á eftir vorum við gjörsamlega búnir á því - svangir og þyrstir. Því var tekin stefnan á McDonalds og einum vænum sporðrennt. Síðan fórum á Poolklúbbinn Sharks þar sem teknir voru nokkrir leikir og steypt í nokkur klósett. Upp úr þrjú var ferðinni svo heitið á Sportbar í Odense þar sem sýndur var leikur fantanna og píslarvottanna í Arsenal gegn málaliðunum í Chelsea. Þar var hægt að festa kaup á 4L bjórturnum og hesthúsuðum við einum slíkum fyrir hvorn hálfleik. Með okkur var Víðir vinur Golla úr læknisfræðinni þarna úti. Það er skemmst frá því að segja að skemmdarvargarnir í Rassenal unnu og hirtu toppsætið af mínum mönnum aftur. Eftir leikinn fórum við síðan heim. Um kvöldið átti að halda upp á afmæli Elnu sem varð 25 ára á laugardaginn og fær hér með hamingjuóskir Ljós-Gíslans. Því var stefnan tekin á Jensen's Bøfhus þar sem ég fékk mér gómsæta piparsteik með rauðvíni og bakaðri kartöflu. Á eftir var það síðan kaffi og koníak. Þegar hér var komið sögu var ölvun orðin töluverð og menn vildu síst glata slíku ástandi enda síðasta tækifærið að bragða á dönsku eðalöli. Því var kíkt á Kristján fjórða sem er víst einhver læknanemapöbb og þar var tekið öl á línuna. Síðan renndum við okkur heim þar sem heimferð var á döfinni morguninn eftir. Við fórum þó ekki í háttinn fyrr en Golla hafði tekist að reka okkur á gat í hinni svokölluðu kvikmyndagetraun sinni þar sem hann spilar lög úr þekktum kvikmyndum á píanóið sitt og nærstaddir reyna að geta upp á myndinni.
Sunnudagurinn 19. október
Byrjaði snemma eða kl. 8 að dönskum tíma þar sem við þurftum að taka lestina frá Odense til Kastrup þaðan sem vélin okkar fór klukkan 13.05 að staðartíma. Það gekk nokkuð tíðindalaust fyrir sig nema hvað við misstum næstum af vélinni því við vorum fullróleg í tíðinni á Kastrup og heyrðum allt í einu bara final boarding call fyrir flugið okkar og þurftum að hlaupa allann rampinn á einum spretti til að komast í vélina. Það endaði þó allt vel og við komum heil heim um kl. hálfþrjú í gær eftir frábæra ferð. Ég hlakka svo sannarlega til að heimsækja þau skötuhjú aftur svo ég tali nú ekki um snillinginn Kóbías. Þakka kærlega fyrir höfðinglegar móttökur.
Afmælisbörn vikunnar
16. október er fyrst og fremst merkilegur fyrir tvö afmæli. Mágkona mín Sigrún Helgadóttir viðskiptamógúll og listakokkur varð 35 ára og fær hún innilegar hamingjuóskir frá okkur Eddu. Má hún eiga von á sérlegum sendiboða á næstu dögum sem mun koma gjöf þeirra skötuhjúa til skila. Hitt afmælisbarnið er Sveinn Fannar Sveinsson (eða Sveinn annar eins og hann er stundum kallaður) sem er sonur Svenna bróður hennar Eddu. Hann er mikill Batman aðdáandi og hraustmenni. Þarf maður oft að hafa sig allan við þegar hann ræðst til atlögu eins og mesta hasarmyndahetja. Hann bauð til afmælisveislu í gær og fær sérlegar þakkir fyrir.
19. október er Elnudagur eins og að ofan má sjá og fær hún aftur hamingjuóskir Ljós-Gíslans
Engin ummæli:
Skrifa ummæli