Greyið hann Bolli litli!
Merkilegt þetta Heimdallarvæl. Ég var að vona að loksins kæmu þarna menn sem ekki kunna að væla en það er víst útséð með það að nokkur maður kunni að taka ósigri. Þannig hefur það tíðkast í félagsskap ungra sjálfstæðismanna víða á landinu að vinna kosningar með atkvæðum manna sem gengið hafa í félagsskapinn rétt áður en kosningin fer fram, m.a.s. stundum samdægurs. Hvernig getur það verið svindl að meina mönnum slíkt? Ég á voðalega bágt með að trúa því að 1300 manns hafi allt í einu ákveðið að ganga í Heimdall af því að þeir töldu Bolla litla framtíð íslenskrar pólítíkur og vildu leggja sitt af mörkum til að hann væri kosinn. Síðan vælir þetta lið út um allt á bloggsíðum og óopinberum síðum framboða sinna yfir öllu þessu óréttlæti. Eina óréttlætið í þessu væri það að formaður félagsins væri ekki kosin af virkum félögum. Það er t.d. ástæða þess að ég kæri mig yfirleitt ekkert um að taka þátt í þessum skrípaleik. Ég verð reyndar að viðurkenna að ég hafði hug að kjósa Hafstein Þór Hauksson félaga minn til formanns S.u.s. nú í haust en mér var ekkert vel við það (þrátt fyrir að ég viti að hann er starfinu vaxnari en nokkur annar) einfaldlega vegna þess að ég hafði ekki kynnt mér hvaða málefnaumræða hefur átt sér stað síðastliðin misseri. Örlögin höguðu því þannig að ég komst ekki í Borgarnes og gat því ekki kosið.
Nú er Deiglan, en svo nefnist hin sári minnihluti í Heimdalli, farinn að hljóma eins og samsullsvælukjóarnir. Allt er ólýðræðislegt og ömurlegt, stjórnin sýnir valdníðslu og ég veit ekki hvað. Málið er bara að það er mjög einfalt að leysa þetta vandamál. Enginn ætti að hafa kosningarétt á slíkum aðalfundum nema fullgildir félagar og það væri hægt að tryggja meðal annars með því að heimta félagsgjald af hverjum og einum sem kærir sig um að kjósa og jafnvel krefjast þess að menn hafi verið félagar í hálft ár til að hafa kosningarétt og jafnvel a.m.k. eitt til að teljast kjörgengir. Nú spyr ég ykkur sem sækist eftir frama í stjórnmálum og þá beini ég spurnum mínum sérstaklega til framboðanna tveggja: "Teljið þið í alvöru að einhver vilji kjósa fólk sem vitað er að hefur rangt við í kosningum í einhverju stuttbuxnafélagi?"
Sem tiltölulega hlutlausum aðila finnst mér grátlega augljóst að hvorugum frambjóðandanum er umhugað að koma stefnumálum sínum á framfæri því ég hef skoðað bæði Deigluna og Hugsjónir og finnst þetta nú fremur þunnar framboðssíður með litlu bitastæðu um stefnumál og áherslur. Meiri hluti dugnaðar þeirra og metnaðar hefur líklega farið í það að safna nýjum félögum sem engan áhuga hafa á raunverulegum niðurstöðum kosninganna, þeir eru bara að kjósa af því Gunna frænka bað um það, eða sæti strákurinn sem leikur í öllum Verslóleikritunum sagði þeim að gera það.
Vakniði nú og hættið þessu helvítis væli. Vinnið kosningarnar á sanngjarnan hátt með því að drífa með ykkur þá sem raunverulega skipta máli í þessu samhengi, gamla og trygga félagsmenn í Heimdalli sem vinna að félagsstarfinu allt árið. Að öðrum kosti eruð þið ekki formenn Heimdalls heldur bekkjarráðsformenn allra bekkjanna í menntaskólanum sem þið höfðuð tögl og hagldir í. Þessi skrípaleikur verður til þess að ég mun aldrei kjósa í Heimdallarkosningu framar fremur en hingað til og mun líklega fara fram á að vera tekinn af félagalistanum þar.
Hættur, farinn, nenni ekki að vera með í svona asnalegu stuttbuxnafélagi.
Já, og eitt enn! Bullið með að Deiglan hafi ekki haft aðgang að félagatalinu er eftir því sem ég fæ séð alger steypa því ég fékk frá þeim símtal og það var tiltölulega augljóst að þeir vissu að ég var skráður félagi í Heimdalli. Ætli þeir hafi komist að því með því að spá í Bolla?
Apasagan!
Þessi fræga saga er mikið notuð af þeim sem tapa í kosningum til að benda á þá augljósu staðreynd (að þeirra eigin mati) að einu einstaklingarnir sem raunverulega vissu hvað þeir voru að kjósa voru þeir sem kusu þá. (lesist aftur og aftur eftir þörfum þar til fullur skilningur næst). Málið er hins vegar það að þeir sem nota þessa sögu fatta ekki að þessa sögu er hægt að heimfæra á næstum öll félagasamtök og þrýstihópa þannig að hún á í rauninni við um þá sjálfa líka. Gott dæmi eru heimasíður fólks sem eru vinir þeirra sem standa í eldlínu þessarar stuttbuxnapólitíkur og halda því með þeim. Guð minn almáttugur - þar eru sko komnir mestu aparnir (ætli ég sé ekki bara einn þeirra). Það er því ljóst að mestu aparnir eru þeir sem ekki sjá að lausnin á vandamálinu er tungumálið. Við höfum háþróaðri samskiptatækni en apar. Þetta þekkist t.d. úr læknavísindunum þar sem meginhluti 20. aldarinnar fór í að hnekkja því sem menn héldu að væri góð læknisfræði með því að sanna hið gagnstæða í rannsóknum. Á sama hátt ætti Bolli greyið að geta sannfært hina hundtryggu hugsjónakjósendur um að hann sé hinn raunverulegi valkostur með því að hrífa fólkið með sér á fundinum. Þar geri ég ráð fyrir að hann hefði haft tækifæri til að halda framboðsræðu og skyggja þannig á mótframbjóðanda sinn með rökum, framkomu og sjálfsöryggi. En honum finnst betra að svindla bara og hann verður að eiga það við sjálfan sig og sína samvisku. En þegar slíkt tekst ekki verður eina ráðið oft það að hrópa háum rómi: "Svindl! Svindl! Mér er meinað að svindla. Þvílík ósvífni." Sannast þá hið fornkveðna að oft bylur hæst í tómri tunnu.
Deiglan
Eftir því sem ég kemst næst er uppistaðan í Deiglunni fólk sem hefur reynt fyrir sér í Vökuframboðum í Háskólanum. Nú hef ég verið lengur en flestir aðrir í HÍ þar sem ég var að hefja mitt sjötta ár við þá ágætu stofnun. Ég hef því séð fjögur framboð frá Vöku (þeir komu ekki til okkar í fyrra af því að við vorum ekki nógu mörg til að það borgaði sig) og öll hafa þau verið brjóstumkennanleg. Ég er nú þekktur fyrir að vera mikill hægrimaður en aldrei hefur þessu svokallaða hægri sinnaða stúdentafélagi tekist að sannfæra mig um eigið ágæti. Yfirleitt var þetta fólk illa undirbúið, illa að sér um sögu Háskólans (og því vandamál hans) og yfirleitt um hvað það var að hella sér út í. Stefnumálin voru þau sömu og hjá Röskvu - þau vildu bara gera það öðruvísi. Það heitir að vera framsóknarmaður. Þetta hefur orðið til þess að tvisvar hef ég kosið Vöku (í bæði skiptin af meðaumkun) en þrisvar skilað auðu. Framsóknarmenn hafa seinni árin flykkst í skurðgoðadýrkunarfélagið Samfylkinguna og búið til skólpræsi. Nú virðast þessir framsóknarmenn hins vegar vera orðnir þreyttir á innihaldslausum loforðum holræsadrottningarinnar og sjá að eina leiðin til að koma Davíð frá völdum er að brjóta hann niður innanfrá með því að ala upp ungliðahreyfingu vinstrivælukjóa í Sjálfstæðisflokknum. Það er ekki nóg að halda að maður sé hægri maður - maður þarf líka að vera það.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli