Jæja!!!
Þá er enn ein snilldarhelgin á enda. Föstudagskvöldið var reyndar ekki æðislegt þar sem ég sat yfir eiturefnafræði vegna prófs sem ég síðan fór í á laugardagsmorguninn. Prófið gekk fínt og strax á eftir fór ég í laugardagsboltann. Mæting var slök en slapp þó og boltinn var ágætur. Á eftir var svo farið á Nesbalann að hjálpa Svenna mág að flytja en hann er loksins eftir 2ja mánaða framkvæmdir búinn að gera nýja húsið sitt íbúðarhæft. Þetta var fljótgert og gistu þau í fyrsta skipti í fína húsinu í gær. Ég óska þeim að sjálfsögðu til hamingju með nýja húsið.
Um kvöldið fórum við síðan til Helgu og Sverris þar sem við elduðum saman nauta entre cote piparsteik með bökuðum kartöflubátum og salati. Þessu var síðan rennt niður með 1999 árgerð af Konunga Hill rauðvíni sem er alveg sérdeilis gott. Júlía hélt fyrir okkur margar áhugaverðar ræður við matarborðið og sagði margt sem eflaust væri mjög skemmtilegt ef maður skildi orð af því sem hún segir. Kvöldstundin fær hæglega 5 bolta í skeytin og inn. Á leiðinni heim fékk ég síðan afar harðort símtal þar sem ég var hvattur til að mæta í bekkjarpartý sem enn stóð í blóma þrátt fyrir að klukkan væri hlaupin dágóðan hálftíma fram yfir miðja nótt. Ég gat að sjálfsögðu ekki hunsað þessa áskorun og úr varð að ég notaði leigubílinn til að komast í Safamýrina þar sem ónefndur bekkjarfélagi minn hafði sundrað teitinni með yfirlýsingum, punghittandi olnbogaskotum og með því að ganga í skrokk á lítilli stúlku sem síðan hafði hann undir og fíflaði hann. Þetta var að sjálfsögðu allt í gamni en stuðið var engu að síður rafmagnað enda entist teitin til að verða fjögur árdegis.
Ég vaknaði því fremur slakur í morgunn og fór beint í Hannesarboltann. Á eftir matreiddi undirritaður amrískar pönnukökur með sýrópi og ís sem runnu ljúflega niður en þegar þær höfðu runnið dágóða stund var kominn tími á að fylla í tómarúmið með fajitas a la Gilli með nautakjöti. Nú liggjum við hér á meltunni, matargestirnir Ingvar og Magga mágkona farnir og bitur veruleiki mánudagsmorgunsins blasir við. Ég ætla að takast á við hann með að því að skrópa og lesa frekar því á morgunn eru ekki margir skemmtilegir fyrirlestrar.
Boltinn
Unitedmaskínan er að hrökkva í gang því Leicester var tekið í gegn á sannfærandi hátt. Rúðan er líka hrokkin í gang og er að sjálfsögðu búinn að taka forystu í keppninni um markheppnasta mann Bretlandseyja. Ánægður með þetta og vona að þeir séu nú loksins komnir á beinu brautinni.
Maggi nafni...
...á afmæli í dag. Ég held að hann sé 26 ára í dag en hann lítur ekki út fyrir að vera nema í mesta lagi fertugur. Til hamingju Maggi minn. Þú ert fallegsti Hannesinn fyrir utan Óla sem að sjálfsögðu fallegasti maður í heimi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli