13. okt. 2003

Við Edda...
...erum á leið í opinbera heimsókn til Danmerkur á miðvikudagsmorgunn. Verðum lent í Danmörku fyrir hádegi og ætlum að eyða tveimur dögum í Köben. Síðan er ferðinni heitið til Odense á fimmtudagskvöldið þar sem Herra Hannes Golli Ozon mun taka á móti okkur með rýrar birgðir af Þýskalandsbjór. Síðan er planið að halda upp á samtals 100 ára afmæli vinkvennanna Eddu, Helgu, Elnu og Áslaugar en þær eiga afmæli 10. nóvember, 20. mars, 18. október og 7. október (í þessari röð). Planið er alla vega að sjá sem mest á sem minnstum tíma og eyða sem minnstum peningi í sem mest. Veit ekki hvernig það tekst hjá okkur en við látum reyna á það.

Engin ummæli: