11. okt. 2003

Þýskaland - Ísland
Landsliðið í knattspyrnu getur verið stolt af frammistöðu sinni í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu. Þeir áttu ágætis leik á móti Þjóðverjum í dag og lokastaðan 3:0 gaf ekki rétta mynd af gangi leiksins. Þjóðverðar voru reyndar töluvert betri að mínu mati en hver veit hvað hefði gerst ef markið hans Hermanns hefði ekki verið dæmt af. Málið er bara það að við misstum af lestinni þegar við klúðruðum leikjunum á móti Skotum. Við hefðum reyndar getað reddað okkur með því að vinna Þjóðverjana hérna heima í september eins og við áttum skilið. En það varð ekki og við verðum bara að halda ótrauðir áfram og klára bara næstu undankeppni og komast á HM eftir 3 ár í Þýskalandi.

Gærkvöldið...
...var ágætt. Ég, Árni og Halli grilluðum alveg rosalega meyrar og fínar lambalærisneiðar, marineraðar í sojasósu og Lamb Islandia kryddi - ekta gott. Halli fær 3 bolta í skeytin fyrir marineringuna og kjötborðið í Nóatúni fær 4 bolta í stöng og inn fyrir úrvalskjöt. Kvöldið endaði síðan í mikilli gleði og drykkju í miðbæ Reykjavíkur. Við Árni tórðum til morguns á 22 aðra helgina í röð og nú verð ég að taka því rólega í kvöld til að ná heilsu. Ætli maður leggist ekki bara í ræmu og Gísla Martein eftir að hafa sporðrennt svínakjöti í súrsætri sósu og hrísgrjónum sem ég er að fara að elda um leið og ég hef lokið við að blogga.

Engin ummæli: