Matsölustaðir - góðir og slæmir!!
Um síðustu helgi fengum við Edda okkur dýrindis thailenskan mat frá Thai Matstofunni. Ekki nóg með að þetta væri snilldarlega gott á bragðið heldur var þetta líka tiltölulega ódýrt og vel útilátið. Staðurinn fær því 3 bolta - einn í skeytin, annan í slánna, þann þriðja í stöngina og svo einn rúllubolta í mitt markið.
Hinn staðurinn er mexíkanska skítabúllan Culiacan. Þetta er nú snyrtilegur staður en maturinn þarna var nánast óætur. Ég minnist þess að Viðar, sem þykist nú hafa vit á mexíkönskum mat, fór lofsamlegum orðum um þennan stað. Tvennt kemur til greina: 1) Maturinn hefur versnað til muna á þessum stutta tíma sem hefur liðið á milli skrifa okkar tveggja eða 2) Ég mun aldrei fara með Viðari inn á mexíkanskan veitingastað sem hann mælir með. A.m.k. fær Culiacan ekki einu sinni almennileg færi til að skora. Bara örfáa lélega stungubolta á feitan framherja.
Boltinn
Rio litli kútur er nú meiri vitleysingurinn. Ég get nú reyndar ekki skilið allt fjölmiðlafárið í kringum þetta, sérstaklega gagnrýni enskra blaða á landsliðsmenn Englands sem stóðu með sínum manni. Maður hefði nú haldið að það þætti jákvætt að liðið stæði saman og við bakið á hvorum öðrum. Maður hefði nú haldið að það bæri góðum liðsanda fagurt vitni. Ég held að England tapi fyrir Tyrkjum, Ísland tapar 3-1 fyrir Þjóðverjum en Litháar vinna Skota 1-2 í Skotlandi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli