Mér finnst...
...ég ekkert þurfa að blogga í dag því ég var svo duglegur í gær en kannski maður skrifi nokkur orð. Lífið er farið að ganga sinn vanagang hér heima. Edda vinnur og ég reyni að læra á meðan. Á kvöldin reynum við að gera eitthvað skemmtilegt saman en það verður nú eitthvað lítið þessa vikuna því ég er að fara í próf á laugardaginn í endurhæfingarfræðum. Eftir prófið verður síðan hitað upp fyrir útskriftarveislu þriggja öðlinga - þeirra Herra Hannesar Bjarna Sigursveinssonar, Herra Hannesar Steinars Ellertssonar og Herra Hannesar Gísla Eyjólfssonar en þeir eru allir að ljúka námi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Allir eru þessir menn úrvalsHannesar og fá að sjálfsögðu hamingjuóskir þegar að útskriftinni kemur. Þeir eru líka vandaðir menn og hafa ráðið sig til starfa hjá rótgrónum félögum og fyrirtækjum. Sverrir (Hannes Bjarni) er kominn til Landsvirkjunnar, Ingi Steinar hefur ráðið sig hjá TM og Magnús hefur ákveðið að helga alla starfskrafta sína, framgangi Herraklúbbsins Hannesar.
Nýr hlekkur
Glöggir lesendur hafa eflaust veitt því eftirtekt að Prinsessa Dana hefur verið hlekkjuð hér til hliðar. Mun þar komin Elna Ósk Stefánsdóttir, æskuvinkona Eddu Guðrúnar sem skrifar gríðarlega frá krummaskuðinu Jelling á Jótlandi. Óskum við Elnu til hamingju með hlekkinn en minnum hana á að slíkum hlekk fylgir ábyrgð sem gæta skal sem sjáaldurs augna sinna, þ.e. það þarf að vera eitthvað bitastætt á enda leiðarinnar sem hlekkurinn vísar. Því ráðlegg ég henni að skrifa reglulega og þá munu þúsundir lesenda Ljós-Gíslans flykkjast á heimasíðu hennar.
Boltinn
Mínir menn stóðu sig með stakri prýði um helgina þegar þeir lögðu Leeds að velli á Elland Road. Frábært mark hjá fyrirliðanum sem klikkar ekki þegar á þarf að halda. Annars fannst mér ótrúlegt miðað við umfjöllun á netinu að sjá ensku mörkin í gær. Á netinu stóð að mínir menn hefðu verið heppnir að hirða öll stigin en miðað við myndirnar voru Leedsarar í nauðvörn allan seinni hálfleik því ég held að sýnd hafi verið ein 8 skot sem Robinson ýmist varði eða rötuðu rétt fram hjá rammanum. Howard sást held ég aldrei í mynd í þessu myndskeiði.
En Hermann er hetja síðustu daga. Skoraði í sínum fyrsta leik í hálfan annan mánuð og það er af lýsingum að dæma alveg stórglæsilegt. Hrossið klikkar ekki og þegar hann er kominn með þefinn af markinu eftir Þýskaraleikinn þá getur hann ekki hætt. Efnilegur. Heppinn.
Pæling
Spáiði í að vera bæði gormæltur og smámæltur - þá er maður eiginlega Dani af spænskum uppruna eða öfugt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli