30. jan. 2003

Glæsilegur...
...seinni hálfleikur hjá strákunum í gær. Ef við spilum allan leikinn í kvöld eins og hann þá rúllum við yfir Spánverjana. Dagur kom sterkur inn í gær og tek ég til baka allan þann óhróður sem ég hef borið út um hann. Hann hefur líklega verið að spara sig strákurinn. Annars er ég að vona að Gummi dragi Snorra Stein fram úr erminni fyrir leikinn í kvöld. Hann er frábær leikstjórnandi en Aron er sá eini sem hefur eitthvað getað í þeirri stöðu til þessa. Ég hef verið að velta fyrir mér þeirri ákvörðun Gumma að hafa Gunnar Berg í hópnum í stað Snorra. Hann er með 3 leikmenn sem geta spilað á miðjunni: Dag, Aron og Patta í hallæri. Hægra megin hefur hann hins vegar: Sigga Bjarna, Patta, Dag, Aron, Guðjón Val og Rúnar. Síðan bætir hann Gunnari Berg við sem aldrei hefur getað neitt. Sorglegt.

Boltinn
Aumingjunum í Arsenal tókst ekki að sigra lélegasta lið Bretlandseyja í gær vegna þess að varnartröllið Heskey skoraði með skalla. Ég veit ekki hvert er meiri snilld: að Arsenal skuli hafa tapað stigum, að það hafi verið á móti Liverpool eða að Heskey hafi skorað jöfnunarmarkið. Úrskurðar er að vænta.

Engin ummæli: