Handboltinn
Okkar menn voru frábærir á móti Portúgölum á fimmtudag þrátt fyrir ömurlega dómgæslu. Við skötuhjúin renndum á nesið til Dreifarans til að horfa á leikinn og það var rosaleg stemming. Roland gerði vel í að verja í lokin og strákarnir eiga heiður skilinn fyrir að pirra sig ekki meira á dómgæslunni. Fyrr má nú vera heimadómgæslan.
Boltinn
Maður er nú alveg að niðurlotum kominn af beinhimnubólgu eftir tíða knattspyrnuiðkun sl. vikur. Ég hef nú tvær vikur í röð tekið sunnudag, mánudag, miðvikudag og er síðan að taka sunnudag á morgunn. Held að ég sleppi framvegis mánudagsboltanum því ég verð svo slæmur í leggjunum af gólfinu sem spilað er á. Kannski maður fari bara að lyfta – sjáum til. Mínir menn eru annars að gera góða hluti. Scholes er í rosalegum ham og það er ekki oft sem maður sér Gary blitza upp kantinn eins og hann gerði á móti Blackburn – rosalegur sprettur. Það verður gaman að sjá leikinn á móti West Ham á morgunn.
Þorrablót
Var á þorrablóti Gnúpverja í gærkvöldi og það er einhver inni í hausnum á mér að minna mig á það með slaghamri. Þorramaturinn fór eitthvað skringilega í magann á mér og ég var eins og undin tuska lengi fram eftir kvöldi en hresstist á öðrum tímanum og fékk mér tvo öllara. Blótið fær 5g fyrir frábæra skemmtun og góð atriði. Sérstaklega var gert grín að félögum mínum Arnóri og Ingvari en þessir seinheppnu tvíburar lentu í því á árinu að drepa vitlausan hest af röngu kyni. Þeir áttu ekki einu sinni hestinn sem þeir drápu. Að þorrablótinu loknu fór ég ásamt Eika út á flugvöll með foreldra hans og síðan renndum við í bæinn. Ég var kominn í rúmið um sjöleytið. Góð ferð.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli