Ljóska vikunnar er...
...Sjonni fyrir að fatta ekki hálfleiðarabrandarann. Ertu ekki tölvuverkfræðingur Sjonni. M.a.s. ég heimski læknaneminn fattaði þetta. En Sjonni er nú einu sinni ljóshærður og búsettur í Ameríku þannig að maður verður að gefa honum sjens. Hann er að reyna að blendast í krávdið.
Augun mín...
...eru merkileg fyrirbæri. Því meira sem ég les um augnþurrk í augnlæknisfræðinni því þurrari verða þau. Síðan roðna þau ef ég voga mér að lesa um rautt auga. Ætti ég að þora að lesa um gláku eða illvígan háþrýsting - já ég verð... að fara að sofa.
Boltinn
Eins gott að mínir menn vinni brúarstólpana um helgina. Annars er Eiður ekki fjarri því að vera eins og brúarstólpi. Hann hefur keypt sér að éta í árans spilavítunum, greyið. Ætli 50 millurnar hafi ekki farið í hammara og franskar með cocktailsósu.
Vinstri menn eru á móti
Magnað að sjá þetta kommapakk við ráðhúsið í dag. Það hefur bara verið þannig alveg síðan við urðum sjálfstæð þjóð að helvítis friðarhreyfingarpakkið hefur verið á móti öllu því jákvæða sem hefur komið fyrir íslenskt þjóðfélag. Inngangan í NATO og Sameinuðu þjóðirnar, á móti komu Tjallans og Kanans með heri sína. Á móti símanum, útvarpinu og sjónvarpinu. Á móti ESB, EES, EFTA og öllu sem á annað borð er skammstafað. Á móti Marshall-aðstoðinni af því að peningarnir voru grænir en ekki rauðir. Á móti virkjunum og helst öllu sem skapar atvinnu. Það er alveg nóg af peningum til í landinu til að þau geti verið atvinnulausir listamenn á ölmusu frá ríkinu. Það á bara að taka peningana af fólkinu sem á þá og hefur unnið fyrir þeim hörðum höndum og heilum nema hvoru tveggja sé. Á móti opinberum heimsóknum íslenskra ráðamanna til landa þar sem glæpur hefur verið framinn og á móti því að nokkur hugsandi maður komi hingað. Meira að segja þegar kommúnistajarl kemur hérna mótmælir þetta pakk sem horfði dreymnum augum til austurs áratugum saman og laug síðan að þjóðinni ef þeir áttu því "láni" að fagna að sjá eymdina sem þar viðgekkst. Aumkunnarvert heiladautt pakk. Það má hún Skalla-Solla reyndar eiga að hún stóð ein upp vinstri manna á sínum tíma og samþykkti EES. Enda er hatur hennar á Davíð eina ástæðan fyrir því að hún er vinstra megin í pólítík. Svona greind kona getur ekki verið vinstra megin í pólítík. Reyndar hefur framferði hennar síðustu vikurnar bent eindregið til þess að hún sé vinstra megin múrsins og þori ekki að stíga yfir rústirnar af því að það er allt svo miklu betra fyrir austan.
Þeir sem glöggir eru hafa takið eftir að ég er hættur að óska Valsbragganum eyðileggingar en það helgast af einu greindarlegu ákvörðuninni sem Skalla-Solla hefur tekið sem borgarstjóri. Hún ætlar að færa Valsbatteríið lengra út í Vatnsmýrina í von um að það sökkvi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli