Jæja!
Þá er maður byrjaður í skólanum aftur. Nú er það augnlæknisfræðin sem heillar. Mjög skemmtilegt fag að læra en ég er ekki viss um að þetta sé eitthvað fyrir mig. Líffærafræðin og lífeðlisfræðin eru heillandi en sjúkdómarnir og læknisfræðin á bak við þá finnst mér ekki jafn heillandi. Það er því enn barnalæknisfræðin sem hefur vinninginn og veðbankar telja nær öruggt að hún verði fyrir valinu eins og staðan er í dag.
Boltinn
Fór í fótbolta í fyrsta skipti á nýju ári á sunnudaginn og er enn slappur í sköflungnum. Maður er orðinn svo gamall að maður má ekki horfa á fótbolta án þess að fá harðsperrur. Kannski maður snúi sér bara að glápi því í kvöld ætla mínir menn í MUFC að flengja litlu drengina í Blackburn. Reyndar er ég alltaf svolítið hræddur við Duff og Dunn og síðan eru auðvitað tvíburarnir í framlínunni aldir upp á OT. Þetta verður spennandi.
Viðar...
...setti í dag heimsmet í bloggun og ég gafst upp um miðja færslu. Þetta var ekkert leiðinlegt eða þannig, ég get bara ekki lesið svona mikið í einu.
Merkilegt...
...hvað maður er trúr vinum sínum. Ég er búinn að fara inn á síðuna hans Gunna í hvert einasta skipti sem ég hef farið á netið síðustu 3 mán. en hann hefur ekki glatt svo traustan og tryggan aðdáanda með svo mikið sem einni helv**** færslu. (sagt með hnugginni en jafnframt reiðri dreifararöddu). Éttu elg, auminginn þinn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli