29. jan. 2003

Boltinn
Eiður og Jóhannes Karl voru báðir á skotskónum í kvöld. Eiður átti víst snilldarleik skv. enskum netmiðlum, skoraði m.a. með hjólhestaspyrnu. Jóhannes átti síðan nokkur góð skot að marki Middlesbrough og skoraði í sínum fyrsta leik, beint úr aukaspyrnu. Ég er verulega ánægður með hvað Leeds hefur hrunið. Maður var orðinn svolítið hræddur við þetta vaxandi stórveldi. Það er greinilegt að O'Leary og Ferdinand voru öxullinn í þessu því síðan þeir fóru hefur þetta lið hreinlega liðast í sundur.

Íbúðir
Er búinn að láta mig dreyma yfir fasteignavef Morgunblaðsins í allt kvöld. Fann nokkrar íbúðir sem koma til greina - sjáum hvernig þetta þróast.

Inga Huld og jólin
Mikið rosalega hljóta jólin að vera löng á Seltjarnarnesinu!!

Engin ummæli: