HM í handbolta
Ísland hefur nú leikið tvo leiki á HM og unnið báða leikina auðveldlega. Fyrst voru Ástralir teknir í gegn og ég held að þriðji flokkur Þróttar Neskaupstað í blaki hefði staðið sig betur gegn íslenska liðinu en það ástralska gerði. Síðan voru snjókarlarnir teknir létt í dag og verð ég að viðurkenna að ég varð fyrir vonbrigðum með að íslenska liðið skildi aðeins skora 30 mörk – það er næstum helmingi minna en í gær. Í kvöld verður síðan slakt lið Liverpool sent út úr deildabikarnum þegar það tapar fyrir Sheffield United á háðuglegan hátt.
Klásus
Ljós-Geislinn vill óska tveimur snillingum sérstaklega til hamingju með frábæran árangur í klásus. Fyrstan skal nefna Helga striker Jónsson úr Ástinni og liði læknanema í fótbolta. Síðan er það Haukur Heiðar Hauksson sem heldur uppteknum hætti og skilar Álftnesingum í gegnum klásus. Snillingar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli