15. jan. 2003

Boltinn
Mínir menn hrista hvern sigurinn af öðrum fram úr klaufinni. Nú síðast voru leikmenn W.B.A. teknir í þann óæðri. Alltaf gaman þegar L.Orri litli tapar - hann er svo mikill lúser. Ekki þó jafnmikill og Hermann sem á heimsmetið í að falla úr úrvalsdeildinni - og aldrei með sama liðinu. Nú síðast staðfestist síðan að Eiður er ekki þar sem hann er séður því hann hefur eytt skiptimyntinni sinni í Rauðakrosskassanna. Nú er verið að tala um Simon Davies til United. Bíddu er það gimpið sem kemst varla í liðið hjá Tottenham - halló!!!

Skólinn
Nú er törn. Augu verða lærð á tveimur vikum sem líkur með prófi næstkomandi laugardag (fyrir trega þá hefur námskeiðið staðið þessa og síðustu viku). Síðan verður horgæslan heimsótt í næstu viku og hefur hafnfirskt hor orðið fyrir valinu. Loks taka síðan við geðsjúklingar og taugahrúgur fram á vor.

Spriklið
Bolti þrisvar í viku (sunnudaga, mánudaga og miðvikudaga) og kílóin renna af manni. Þyrfti eiginlega að sprikla eitthvað á föstudögum líka en það vill enginn leika þá - allir í vísindaferðum að læra eitthvað nýtt.

Pólítík
Hvernig er hægt annað en að hlæja að vinstrimönnum í Reykjavík. Þeim virðist finnast það notalegt að láta Skalla-Sollu krukka í sér með dildoinum Össuri.

Engin ummæli: