3. feb. 2003

HM
Ingvari er hér með óskað til hamingju með heimsmeistaratitilinn í handbolta. Auðvitað var ég löngu búinn að spá Króötum sigri enda eru þeir búnir að sigra hverja stórþjóðina á fætur annarri í þessari keppni. Strákarnir fóru síðan létt með Júggana í leiknum um 7. sætið og því er Ólympíusætið tryggt. Glæsilegur árangur hjá ekki stærri þjóð. Menn mega ekki gleyma því að allar þjóðirnar sem við töpuðum fyrir eru stórþjóðir í handboltanum og líka tvær af þeim sem við unnum. Rússland, Spánn, Þýskaland - 2., 4. og 5. sæti á mótinu. Síðan vinnum við Portúgal og Júgóslavíu. Þessir drengir eru snillingar.

Háskóladeildin
Mínir menn í læknisfræðinni tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni með frábærum sigri á verkfræðinni þrátt fyrir að stjörnustrikerinn vantaði. Í staðinn skoruðu Árni Pneumo, Cor-Geiri og Helgi busi. snillingar. Nú er bara að safna liði og slátra þessum súkkúlaðistrákum úr HR. Þeir þekkja ekki íslenskan kulda eftir vetrarfrí í sólarbekkjum Kringluhverfisins - aumingjar.

Enski boltinn
Mínir menn eru farnir að banka á bakdyrnar hjá Arsenal en senn líður að því að leikirnir verða of stuttir fyrir Hábarðana til að sigra. Þetta var náttúrlega alveg hræðilegur varnarleikur þarna í lokin hjá Fulham. Hvernig dettur mönnum í hug að borga svona varnarmönnun fyrir að spila fótbolta? Annars virðist Liverpool vera að vakna og það er ágætt. Kannski ná þeir að tryggja sér sæti í efri hluta deildarinnar en ég held að þeirra bíði ekki merkilegri Evrópukeppni en Inter-Toto. Greyin!!

Í dag er gleði
Holræsa-Solla er hætt sem borgarstjóri og hefur nú hafist handa við að ljúga kjósendur fulla að hætti vinstri frammámanna. Kannski ætti hún að nota Ólagrís-taktíkina og þegja bara fram að kosningum. Annars er hún svo mikil tík að hún þarf ekki hjálp frá nöfnum sínum pólí-tíkinni og tak-tíkinni.

Engin ummæli: