Handboltinn
Djöfull voru strákarnir okkar sorry á móti Þjóðverjum. Það er alveg með ólíkindum að Þjóðverjarnir skyldu ekki valta yfir okkur. Sennilega geta þeir ekki rassgat. Óli átti lélegasta leik sinn fyrir landsliðið sem ég man eftir. Hann greip aldrei boltann í fyrstu tilraun. Þrátt fyrir þetta var hann líklega með betri mönnum liðsins. Gummi hlaðborð var sá eini sem spilaði af getu og Rúnar var nálægt henni í vörninni. En lítum á björtu hliðarnar – við erum búin með lélega leikinn og nú er bara að slátra Pólverjum og síðan Spánverjum eins og um árið í Kumamoto.
Boltinn
Maður á bara ekki orð yfir yfirburðum yfirburðaliðs United gegn West Ham í gær. Var reyndar sofandi þegar leikurinn fór fram en Giggsarinn rak kjaftæðið ofan í görnina á rækjusamlokuliðinu á Old Trafford með tveimur mörkum og frábærri frammistöðu. Rúðan vaknaði eftir mikla markaþurrð og Skerið setti eitt af gömlum vana. Litla systir fékk síðan að vera memm og setti eitt. Liverpool sannaði með enn einni stórframmistöðunni að þeir eru langbesta liðið á Bretlandseyjum þegar þeir grísuðu á jafntefli gegn heimsmeisturum Crystal Palace.
Þorrablót & Gettóið
Fjölskylda Eddu afsannaði hið fornkveðna um tengdafjölskyldur með frábæru þorrablóti á laugardagskvöldið. Ég sé mest eftir því að hafa farið þaðan til að tékka á stemmingunni í bænum því hún var lítil þrátt fyrir að við Árni og Jón Þorkell ásamt Halla reyndum að rokka þetta upp með uppistandi á Nonnabátum. Halli var með sýnikennslu í hvernig á ekki að blanda í útilegum og eyðilagði þannig fullan pela af forvondu gini (Gordon’s) og Árni lék ungling: “ég er svo fullur”. Jón hélt kennslu í hreinsun matsölustaða en hann hefur verið þekktari fyrir að hreinsa klof unglinga með rógburði um annars ágætar örverur. Síðan var tekin töfrapizza og farið heim.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli