9. jan. 2003

Afmælisbarn hins dagsins!
Óttar bróðir varð þrítugur í fjórða skipti á þriðjudaginn og gleymdi ég að minnast á það í færslunni þá. Til hamingju með daginn gamli.

Mótsögn
Hafið þið tekið eftir liðinu sem er að leggja fyrir utan líkamsræktarstöðvarnar. Ég fer reglulega í fótbolta í Sporthúsinu í Smáranum og mér finnst alltaf jafnfyndið að það skuli spikfeitar húsmæður og grindhoraðar fyrirsætur keppast við að leggja ólöglega eins nálægt húsinu og hægt er. Halló!! Þið eruð á leiðinni í líkamsrækt - munar ykkur eitthvað um það að labba eins og 20 metrum lengra. Hafið þið ekki kannski bara svolítið gott af því, hlussurnar ykkar. Persónulega finnst mér allt í lagi að leita að stæðinu sem er næst, sérstaklega ef það er leiðinlegt veður. En að leggja ólöglega á þröngu bílaplani og teppa þannig umferð er algjörlega óþolandi. Ég skil bara ekki af hverju Linda lætur ekki draga þessar hlussur í burtu - þ.e. bílana þeirra.

Boltinn
Mínir menn virðast ekki geta spilað almennilegan fótbolta gegn aumingjunum í Blackburn. Kettlingar.

Engin ummæli: