Vá!!!
Ég er búinn að vera yfirnáttúrlega latur við bloggið síðustu vikurnar. Það hefur svo sem ekki verið mikið að blogga yfir. Ef út í jólagjafirnar er farið þá fékk ég mestmegnis föt - bæði frá mömmu, Eddu og systur hennar. Frá foreldrum Eddu fékk ég KK-diskinn og neftóbak (fylgir öllum gjöfum frá þeim). Frá Gunna fékk ég nýja Sigur-Rósar-diskinn en svo skemmtilega vildi til að ég gaf honum sama disk. Frá bræðrum mínum fengum við Edda sængurföt og diskamottur (smá pressa á sambúð). Frá ömmu&afa fékk ég síðan Röddina en þar sem áttahundruð eintök eru til á heimilunum í kringum mig ákvað ég að skipta henni í Atómstöðina eftir Dóra Lax. Þar með er það upptalið. Annars finnast mér jólin orðin ferlega sorry tími orðið. Maður er eiginlega löngu kominn með leið á allri þessari vitleysu þegar þau loksins koma. Jólaskrautið búið að vera uppi í 3 mánuði og brosið svo frosið framan í kaupmönnunum að maður biður til Guðs að ættingjar þeirra drepist ekki rétt á meðan svo þeir verði sér ekki að fífli í jarðarförinni. Ég kemst nú yfirleitt ekki í jólaskap fyrr en á Þorláksmessu í fyrsta lagi og í ár var það bara um sexleytið á aðfangadag. Er ég Ebenezer Scrooge 21. aldarinnar?
Boltinn
Mínir menn að gera góða hluti núna. Beckham skorar í hverjum leik og liðið vinnur hvern leikinn á fætur öðrum. Ég held við eigum eftir að hirða bikara í vor og þá er ég ekkert að tala um eitthvað morgunkornsglingur. Poolararnir hafa nú ekki unnið leik í úrvaldsdeild síðan í byrjun nóvember - greyin!!
Vinstri menn
Merkilegt hvað margir kommar hafa plummað sig í Gettu betur miðað við hvað minni þeirra er skammvinnt. Nú segjast 39% Íslendinga ætla að kjósa lygalaupanna og aumingjana í Samfylkingunni. Þetta er nákvæmlega það sama og þegar hreinn meirihluti þjóðarinnar kaus óvinsælasta, lygnasta og spilltasta stjórnmálamann Íslandssögunnar forseta eftir að hann hafði misst málið í 9 mán. Ég skammast mín fyrir að eiga þetta fólk að löndum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli