1. jan. 2003

Gleðilegt ár
Hef lítið getað skrifað um jólin vegna almennrar leti og vinnu. Hef verið að vinna mikið alltaf frá 08-08 - Þorláksmessa - Annar í jólum - 29. des - Gamlársdagur+Nýársnótt. Er orðinn ruglaður í sólarhringnum eftir margar vökunætur og orðinn mjög dagsvæfinn. En ég óska ykkur öllum gleðilegs árs og þakka fyrir liðnar samverustundir sem því miður hafa líklega verið fleiri hér á þessum síðum en þær hafa verið í eigin persónu.

Boltinn
Mínir menn ekki alveg að skilja mikilvægi þess að tapa ekki leik. Töpuðu fyrir Blackburn þarna um daginn og verður að segjast að þeir áttu bara ekki meira skilið. Skítaframmistaða. Þeir hafa hins vegar tekið sig á og sigruðu bæði Sunderland og Birmingham nú um áramótin og er það gott. Arsenal virðist hins vegar komið í sama heppnisgírinn og þeir voru í í fyrra og vinna ítrekað á sjálfsmörkum hins liðsins. Aumingjar

Engin ummæli: