19. des. 2002

Boltinn
Mínir menn að gera það gott í boltanum enn einu sinni. Forlan sá um Cudicini. Það eru ekki allir sem klobba þenna frábæra markvörð en ég held að Forlan verði fljótlega orðinn í miklu uppáhaldi hjá United-aðdáendum og raunar er hann í miklu uppáhaldi hjá mér eftir að hann skoraði tvö á móti Liverpool. Liverpool tryggði sig síðan fremur óverðskuldað áfram í gærkvöldi og stefna ótrauðir á Coco-Puffs-þrennuna alræmdu sem þeir unnu fyrir margt löngu.
Auk alls þessa gengur sú saga auðvitað fjöllum hærra að Eiður ísmaður sé á leiðinni til United. Vitað er að Ferguson hefur lengi verið aðdáandi Smárans og ég er nokkuð viss um að mér mundi ekkert leiðast að hafa hann í United-liðinu. Kannski maður yrði þá að kaupa sér tvær treyjur – eina með Gudjohnsen og aðra með Solskjær.

Imba lygalaupur
Ingibjörg Skalla-Sólrún Gísladóttir (örugglega rangt feðruð) hefur nú ákveðið að svíkja kjósendur sína eins og ég vissi reyndar að hún mundi gera. Hún hefur sem sé tekiðð ákvörðun um að bjóða sig gegn Davíð og Dóra í Reykjavík. Hún ætlar hins vegar ekki að taka leiðandi sæti á listanum heldur vera í fimmta sætinu eins og hún orðar það svo skemmtilega sjálf. Það þyrfti kannski einhver glöggur fréttamaður að benda henni á að hún er í áttunda sæti R-listans í Reykjavík og því skv. hennar skilningi ekki í leiðandi sæti þar. Samt er hún borgarstjóri. Staðreyndin er bara sú að þetta vinstra pakk hér í Reykjavík hefur aldrei getað tjaslað saman almennilegum lista og verður því að setja eina frambærilega einstaklinginn í svokallað “baráttusæti” til að draga alla hina aumingjana með sér inn í borgarmálin.
Menn hafa heldur ekki velt því fyrir sér að í raun hefur Ingibjörg nú gengið úr einum stjórnmálaflokk í annan. Hún hefur verið í R-listanum sem er sameiginlegt framboð allra illra afla á Íslandi en nú ætlar hún fram undir merkjum Samfylkingarinnar.. Hún hefur raunverulega verið utan hinna þriggja flokka sem mynda R-listann og er því ómögulegt fyrir hana að halda fram því hlutleysi gagnvart vinstristefnunni sem hún hefur gert sl. ár. Er hægt að vera virkur meðlimur í tveimur stjórnmálaöflum og samt vera trúverðugur? Kalt mat: NEI!!!
Síðast en ekki síst langar mig að benda vinstri mönnum á að nú geta þeir loksins látið skína í að þeir séu menn málanna en ekki menn einstaklingshyggjunnar. Staðreyndin er sú að Ingibjörg hefur gengið á bak orða sinna gagnvart kjósendum sínum og raunverulega öllum landsmönnum. Hversu fljótir ætli vinstri menn verði að gleyma því og kjósa hana. Það hefur nefnilega verið munurinn á hægrimönnum og vinstrimönnum að þeir fyrrnefndu eru heiðarlegir en hinir rosalega góðir – jafnvel þó það kosti hagræðingu á sannleikanum sbr. stöðu fjármála borgarinnar. Ingibjörg – þú er lygalaupur.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!

Engin ummæli: