Set nýjan síma og heimilisfang hér til hliðar. Síminn er svona frelsissími þannig að ég svara örugglega ekki mikið af sms-um nema ég sé við tölvu. Hins vegar getið þið prófað að hringja á skrifstofuna mína milli kl. 1530 og 1800 á norskum tíma (14:30 og 17:00 á Íslandi núna en 13:30 og 16:00 þegar sumartíminn kemur) því þá er planið að vera að lesa. Svo er læst á Facebook á sjúkrahúsinu þannig að ég læt ekki sjá mig þar fyrr en eftir hálfan mánuð til þrjár vikur nema ég komist einhvers staðar á netið annars staðar en í vinnunni.
MBK
GBB
5 ummæli:
Hæhæ Gísli minn.
Edda var bara að segja mér frá því að þú værir svona duglegur að blogga. Núna á ég eftir að fylgjast vel með þér ;)
hafðu það rosalega gott!
Kv. Magga Pála
Hæ Gísli minn, og til hamingju með allt það sem þú ert að takast á við í nýju landi og nýrri stöðu. Edda leiddi mig inn á bloggið í kvöld. Hildur Vaka var í pössun á meðan Edda var á starfsmannafundi í dag. Hún er yndisleg um það erum við afi sammála og ekki efa ég að þú ert það líka. Gaman að lesa það sem þú hefur sett á blað um það sem á dagana drífur hjá þér. Amma og afi á Ljósó voru hér líka a.u. á þriðjud. og HV og langafi skáluðu í mjólk yfir matnum og auðvitað heillaði hún þau upp úr skónum með sínum skemmtilegheitum. Heyrumst fljótlega kallinn minn, mamma
Hæ ástin mín!
Ég er sem sagt að prófa að commenta í þriðja skiptið og vonandi tekst mér það núna þökk sé Möggu systir. Hlakka til að heyra í þér á eftir. Gangi þér vel á vaktinni.
Lovja, kv. Edda
Sæll,
Gaman að heyra að allt gengur vel í nýja landinu og jobbinu. Höllin lítur vel út og ekki verra að hún sé í "Steinsholtsgötu" eða er það ekki rétt þýðing á Stenbergsgade. Reyni að hringja í þig um helgina. Allt gengur vel með lilla.
Kveðja,
Óttar
Takk fyrir allar kveðjurnar. Gaman að fá komment
Skrifa ummæli