13. jan. 2009
Gaman í vinnunni en erfitt á kvöldin
Ég nýt mín sífellt meira í vinnunni. Norskan kemur mjög fljótt og faglega er ég að sjá nýja hluti á hverjum degi. Líffæraflutningar 2-3 á dag síðustu dagana. Sjúkdómar sem ég hef annað hvort bara lesið um í bókum eða aldrei heyrt um. Ótrúlega spennandi tilfelli og maður endurnýjar áhugann alveg upp á nýtt sem þó var ekki lítill fyrir. Ég reyni að hafa nóg fyrir stafni á daginn og fram undir kvöldmat með því að lesa og undirbúa mig fyrir aðgerðir morgundagsins. Planið þar til mæðgurnar koma út er að lesa fram undir kvöldmat, hjóla þá heim og slaka á eftir kvöldmat, fara kannski út að hlaupa 3-4 x í viku og fara svo snemma í háttinn. Kvöldin eru erfið en það hjálpar að ég hef verið eitthvað að gera flest kvöld. Nú ætla ég að einbeita mér að því að hrekkja nágranna mína með því að æfa mig á gítarinn á kvöldin. Á morgun tek ég svokallaða "følgevakt" sem þýðir að ég ætla að elta forvaktina og sjá hvernig vaktavinnan gengur fyrir sig. Fyrir það fæ ég síðan frí á föstudaginn, þ.e. ég verð á launum á vaktinni sem er ekki eitthvað sem ég vandist á svona vöktum á Íslandi. Ég á því langa helgi um helgina.
1 ummæli:
Gítarinn er góður, dreifa huganum. Þú mátt spila stál og hnífur enda bæði læknir og farandverkamaður. Farðu bara ekki að góla mikið með, þá verður þér pottþétt hent út.
Kv. Sverrir
Skrifa ummæli