5. jan. 2009

Fyrsti dagurinn

Þá er fyrsti vinnudagurinn að baki. Ég svaf eins og engill í nótt en það er í fyrsta skipti sem ég geri það nóttina áður en ég byrja í nýrri vinnu. Var síðan mættur snemma eða upp úr sjö. Fékk lánaðan bílinn hans Nonna bróður en hann hefur ekki selst síðan þau fóru heim. Það léttir mér óneitanlega lífið fyrstu vikuna enda heilmikill þeytingur á manni. En ég sumsé mætti og allt gekk vel. Mesti parturinn af morgninum fór í skoðunarferð um spítalann og á meðan á henni stóð var komið við til að fá föt, auðkenniskort og fleira slíkt. Ég er meira að segja kominn með skrifstofu sem ég deili með einum öðrum sem er náttúrlega snilld. Ég hef mína eigin tölvu og mikið hillupláss og mér sýnist því að Norðmenn ætlist til að maður vinni í vinnunni en slappi af heima. Ég ætla að taka hintinu. Ég fékk síðan að fara um hádegið til að redda ýmislegu hjá skattinum hér úti en ég þurfti bæði að tilkynna flutning og sækja um norska kennitölu. Það kom upp úr dúrnum að gamla kennitalan mín síðan 1998 er enn á skrá hér en dottin úr gildi þannig að ég þarf nýja. Það tók rúman klukkutíma að komast að á skattstofunni en þegar það loksins gekk var afgreiðsludaman hin almennilegasta og sérlega hjálpsöm - það er eitthvað að ganga þessa dagana. Í það minnsta er þetta frágengið en afgreiðslan tekur u.þ.b. 3 vikur. Fór svo að athuga með leikskólamálin fyrir Hildi Vöku hér á bæjarskrifstofunum í Bærum og spurðist fyrir um atvinnu fyrir Eddu líka. Síðan kíkti ég í Sandvika Storsenter en var tæpur á tíma og gat ekki verslað neitt af því sem mig vantaði. Geri það á morgun eða hinn. En alla vega þá var fyrsti dagurinn bara mjög lofandi og ég hlakka til að mæta aftur á morgun.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Heill og sæll

Kveðjur frá okkur. Því miður komumst við ekki til ykkar um daginn vegna veikinda og vinnu. Það er kominn einhver rólyndistónn í bloggið þitt eftir endurlífgunina. Hvort það er jákvætt eða ekki er auðvitað ekki fulljóst enn. Heyrumst.