Góður dagur í vinnunni í dag. Aftur á kvennadeild. Vorum reyndar fjórir (Sérfræðingur, sérfræðinemi sem kom í heimsókn frá öðru sjúkrahúsi þar sem ekki er kvennadeild, læknanemi og ég) um eina stofu því það var lítið prógram. Ég er strax farinn að taka stórstígum framförum í norskunni (að eigin mati) og Norðmennirnir virðast oftast skilja það sem ég segi. Hér er mikil hefð fyrir erlendum svæfingalæknum og mér reiknast til að næstum þriðjungur sérfræðinemanna sé útlendingar og töluvert af sérfræðingunum. Var til dæmis bæði í gær og í dag með þýska sérfræðinga á bakvið mig.
Eftir vinnu fór ég aftur að kíkja á herbergið til að athuga hvað ég þyrfti að útvega mér áður en ég flyt inn og fór síðan í IKEA og keypti það sem upp á vantaði. IKEA verslunin hérna úti í Bærum er mjög stór og flott og verðið töluvert betra en heima. Ég keypti til að mynda næstum fullan bláan IKEA-poka af alls kyns dóti og borgaði eitthvað um 500 norskar fyrir. Mjög gott mál. Fór síðan í bílskúrinn til Geirs til að koma hjólinu í stand fyrir hjólreiðarnar næstu vikurnar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli