Ég skrifaði svo mikið á fimmtudaginn að ég ætla að hafa þetta stutt í dag.
Húsaveiðar
Ég fór og kíkti á húsið sem ég sagði frá á fimmtudaginn í gærkvöldi. Þar býr Norðmaður sem er giftur kínverskri konu í nýuppgerðu endaraðhúsi. Ég varð strax stórhrifinn og við ætlum að gera tilboð á mánudagsmorgunn. Læt ykkur vita hvernig það gengur.
Pólítík
Það er grátbroslegt að fylgjast með ástandinu heima. Norðmenn hafa heilmikla samúð með okkur en það endist nú ekki lengi með þessu áframhaldi.
Hreyfing
Tók rúma 12 km á Bygdö í dag. Svolítið dapurleg frammistaða en tímarnir eru samt að skána og astminn og hnén eru að stríða mér. Líður samt vel á eftir og ætla að þrífa aðeins í dag og þvo þvotta. Svo er stefnan sett á að taka annað hvort stóran hjólahring eða 15-18 km hlaup á morgun. Sjáum í hvernig stuði ég er.
3 ummæli:
Ég er líka stórhrifinn af kínversku fólki.
mge
12 km finnst mér bara nokkuð öflug framistaða..... en kannski ekki að marka mig.... aðalmarkmiðið mitt þessa stundina er að komast upp í íbúðina okkar... sem reyndar gengur alveg ótrúlega vel mv/ ástand :)
gaman að fylgjast með þér og hvað þér finnst gaman í nýju vinnunni :)

Skrifa ummæli