29. jan. 2009

Langt síðan síðast

Það er heldur betur búið að gerast ýmislegt síðan ég settist síðast niður til að blogga.

Húsnæðisleit
Ég er búinn að vera á fullu að skoða hús. Skoðaði tvö á fimmtudaginn fyrir viku eins og ég hef áður sagt frá og skoðaði síðan eitt mjög stórt og flott raðhús á mánudag og síðan þrjár íbúðir í gær. Við vorum eiginlega búin að ákveða að bjóða í raðhúsið sem mér fannst svo fínt fyrir helgi en í morgunn áður en ég sendi tilboðið ákvað ég að kíkja einu sinni enn á finn.no og athuga hvort eitthvað hefði bæst við og þá var húsið sem við erum búin að vera að leita að komið á netið. Við erum þvílíkt spennt og ég er að fara að skoða á morgun. Ef allt gengur upp þá ætti þetta að vera klappað og klárt um leið og ég fæ kennitöluna sem ég vona að verði á morgun eða strax eftir helgi. Skrifa örugglega um helgina hvernig þetta fer á morgun.

Stjórnmálin
Ég held ég láti vera að tjá mig um þessa fábjána sem við í sameiningu kusum öll yfir okkur í síðustu kosningum. Ég held ég láti duga að segja að ég er sannfærður um að við séum að fara úr öskunni í eldinn. Það eina jákvæða við þetta er kannski það að við fáum almennilega endurnýjun í flokkana í vor en ekki bara í Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu. Ég spái því að tíminn fram að kosningum verði litaður sömu stjórnarkreppu og Reykvíkingar þurftu að þola í kringum þarsíðustu áramót. Það verður athyglisvert að sjá hvernig Jóhanna klárar sig forsætisráðherrastólnum en hún hefur verið góður félagsmálaráðherra og líklega eini ráðherrann sem hefur gert eitthvað af viti síðan í október. Eins vil ég segja að mér finnst synd að Ágúst Ólafur skuli hverfa af þingi en mér hefur fundist gaman að fylgjast með honum og ég er viss um að ef hann nær frama í pólítík eftir endurkomuna þá mun ég hugleiða að kjósa hann. Ég lái honum þó ekki að vilja ekki taka þátt í þessum vinstri græna skrípaleik.

Fótboltinn
Mínir menn eru á rosalegri siglingu á meðan hin liðin keppast við að gera gloríur. Chelsea virðist reyndar vera að ná upp ágætis formi en ég held það sé of seint. Van der Saar og strákarnir í vörninni hafa verið frábærir upp á síðkastið og verðskulda metið sem þeir settu í fyrradag. Nefnilega að halda hreinu ellefta leikinn í röð og bæta þannig met Chelsea en auk þess hefur enginn markmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar haldið hreinu marki jafn lengi. Mér finnst samt frammistaða Michaels Carrick í síðustu leikjum standa upp úr. Frábærar sendingar hans hafa skapað ótal færi og nokkur mörk auk þess sem vinnusemin og dugnaðurinn á miðjunni skilar sér í betri varnarleik fyrir aftan hann. Scholes og Giggs hafa einnig verið magnaðir þrátt fyrir að vera komnir fast að áttræðu auk þess sem Tevez og Berbatov hafa verið baneitraðir saman frammi. Ronaldo er líka að koma til eftir að hafa farið rólega af stað í haust og hann var mjög ógnandi á móti WBA á þriðjudag. Ég held að það verði í það minnsta tveir titlar í vor með þessu áframhaldi en þeir gætu orðið fjórir.

Trójuhestur/-vírus
Ég fékk einhvern helvítis Trójuvírus í tölvuna í gær og var í allt gærkvöld að reyna að vinna bug á honum. Hann er enn að stríða mér en ég er búinn að keyra SpyBot, WindowsDefender og McAfee vírusvörnina trekk í trekk og losna alltaf við meira og meira. Held að hann hafi ekki náð að senda út tölvupósta en þið varið ykkur ef þið fáið póst frá gislibe@internet.is því það netfang nota ég sjaldan þó ég hafi það uppsett í Outlook.

Megrun
Ég er nú ekki í aktífri megrun hérna úti en hef reynt að halda áfram með heilsuátakið. Ég hef ekki getað farið eins mikið út að hlaupa og ég hefði viljað vegna eymsla í hnénu og erfiðra veðurskilyrða. Auk þess hef ég verið tvo daga í vikunni fram eftir kvöldi að skoða íbúðir. Reyni þess í stað að hjóla aðeins aukalega en ætla að reyna að hlaupa um helgina bæði laugardag og sunnudag ef ég verð í lagi í hnénu. Ég er nú samt búinn að léttast um hálft þriðja kíló síðan um áramót.

Nýr vinnustaður
Byrjaði á Radiumhospitalet á mánudaginn og líkar vel. Þarna eru framkvæmdar flestar meiriháttar krabbameinsaðgerðir í Noregi þó heilmikið sé líka gert á stóru landshlutasjúkrahúsunum. Þarna er verið að gera aðgerðir af stærðargráðu sem ég hef ekki vanist heima þar sem verið er að skera í mörg líffæri í sömu aðgerð í þeim tilgangi að lækna fólk af krabbameini eða í það minnsta halda þeim að mestu í skefjum. Aðgerðirnar eru oft langar og erfiðar og algengt er að þær standi í þrjár til átta klukkustundir og stundum lengur. Ég er búinn að svæfa fyrir tvær svona risaaðgerðir alveg upp á eigin spýtur en sérfræðingur hefur verið á bak við mig ef eitthvað kemur upp á. Hér er gert ráð fyrir að maður hafi töluvert mikla reynslu og maður hefur heilmikið frjálsræði í ákvarðanatöku. Það er gert ráð fyrir að maður sé lesinn í fræðunum en síðan er manni leiðbeint ef eitthvað er ekki í samræmi við það sem viðurkennt er. Ég hef greinilega fengið góða kennslu heima á Íslandi því enn sem komið er hafa þeir verið mjög jákvæðir í minn garð sem hafa haft með mig að gera. Ég held að það verði mjög gaman að vinna þarna fyrstu mánuðina og rólega tempóið gerir það að verkum að ég get einbeitt mér að því að lesa og læra norskuna. Gat til dæmis lesið mikið í dag á milli aðgerða. Hér er líka gert ráð fyrir að þriðja til fjórða hvern föstudag eigi maður klíníklausan dag, þ.e. maður hefur engum svæfingaskyldum að gegna heldur á maður að lesa fræðin. Það er samt gert ráð fyrir að maður mæti á morgunfund en eftir hann er maður sendur á skrifstofuna að lesa. Það er auðvitað gríðarlega mikilvægt en heima þurfti maður yfirleitt að gera þetta í sínum eigin frítíma eða á vöktunum vegna þess hve mikið var að gera.

Heimsókn
Ég er búinn að fjárfesta í miða heim til Íslands föstudaginn þrettánda febrúar og verð heima í rúma viku. Á stefnuskránni verður að njóta tímans með stelpunum mínum og svo klára ég ferðina með brúðkaupi Vidda bjú og Jónínu. Ég er gríðarlega ánægður að geta verið með þeim þennan dag en lengi vel leit út fyrir að ég kæmist ekki. Það er aldrei að vita nema við kýlum á að pakka niður dótinu okkar þessa viku þannig að kannski verður nóg hjá mér að gera. Ef við fáum þetta raðhús sem ég er að fara að kíkja á á morgun þá er leigan á því frá 1. mars svo það verður ekki seinna vænna að drífa pökkunina af.

Verðlag
Munduð þið borga 1360 kr fyrir venjulega Big Mac máltíð eða 350 kr fyrir hálfan lítra af Pepsi Max í plasti. Ef maður umreiknar norska verðlagið yfir í íslenskar krónur er þetta verðið. Ég keypti mér t.d. pylsu, pepsi max og daim í gær fyrir 1408 kr íslenskar. Bilun. Hins vegar má hugsa það þannig að ég minnka vinnuna við mig um næstum 40% við að koma hérna út en hækka umtalsvert í launum. Auk þess fæ ég frí úr vinnunni á launum með dagpeninga til að fara á námskeið sem eru skylda í sérnáminu og fæ frí níundu hverja viku vegna áunnins frítökuréttar.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég vona einnilega að pylsan hafi smakkast vel :) Kv. Edda Guðrún