25. jan. 2009
Björgvin hættir
Það var kominn tími á að einhver ráðherra axlaði ábyrgð. Því miður held ég að þetta sé ekki gert á réttum forsendum heldur til að auka möguleika hans á að ná aftur kjöri á þing í vor. En niðurstaðan er sú sama. Ráðherra sem hefur ekki staðið sig hverfur úr embætti og gefur öðrum tækifæri með hreinan skjöld. Mér finnst reyndar góður leikur hjá honum að losa sig við stjórn Fjármálaeftirlitsins í leiðinni. Það verður kannski til þess að fólkið í landinu fær smá tiltrú á stjórn fjármálalífsins í landinu.
1 ummæli:
Sæll kallinn minn, fer reglulega inn á bloggið þitt og finnst gott að fá að fylgjast með daglega lífinu þínu, aðeins eitt kommment í dag eftir lestur nokkurra færslna; "Passaðu upp á hvíldartímann! Það er númer eitt, tvö og þrjú ef maður á að virka almennilega í vinnu og daglegum samskiptum."
Það ritar þín lífsreynda heittelskandi mamma!!
Skrifa ummæli