Þó það sé rosalega gaman í vinnunni er erfitt að einbeita sér að norskunni allan daginn. Ég brenndi mig á því fyrstu tvær vikurnar að sofa ekki nóg svo ég tók þessa vikuna með trompi og passaði mig að sofa aldrei minna en 6 tíma og helst ekki minna en 8. Það þýðir að ég er kominn í bólið um tíu því ég fer á fætur kl. 5:45. Ég var samt alveg að drepast úr þreytu í gærkvöldi og sofnaði yfir bókinni sem hefur heltekið mig síðan ég kom hérna út. Vaknaði svo um miðnættið og fór úr fötunum og undir sæng. Svaf síðan eins og ungabarn til kl. 10 í morgunn. Ætlaði svo að fara út að hlaupa í morgunn en það hefur snjóað svo mikið hér í nótt að það er erfitt. Stefni því á að hlaupa á morgun.
Ég fékk svo loksins netið í dag. Þeir komu með módem hérna heim á fimmtudagskvöldið en það var bilað og ég þurfti því að fara í búðina í dag til að fá nýtt. Það gekk eftir og netið virkar vel. Er að fara að horfa á Manchester United-Tottenham í bikarnum og éta piparsveinalasagna. Ætla mér að njóta kvöldsins í rólegheitum, lesa og horfa á bíómyndir.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli