16. jan. 2009
Boltinn
Bara svona fyrir þá sem elska fótbolta þá er ég gríðarlega sáttur við að mínir menn skuli hafa lagt Wigan að velli í vikunni. Gríðarlega mikilvægt skref í átt að Liverpool á toppnum og nú er ekki langt að bíða þar til við stingum þessa aumingja af í titilbaráttunni. Það eru svona tiltölulega auðveldir leikir framundan í deild og bikar - Bolton í deildinni á laugardaginn, svo Derby í deildarbikarnum, þá Tottenham í bikarnum, síðan heimsækjum við West Brom í deildinni og fáum svo Everton í heimsókn í deildinni. Eftir þessa leiki held ég að United verði komið á toppinn því Liverpool á þrjá Everton, Wigan og Chelsea í næstu þremur leikjum í deild, og reyndar Everton í bikarnum líka inn á milli. Þetta verður létt það sem eftir er tímabils og ég held að við tökum þrjár dollur í ár.
2 ummæli:
Næstum 180 mín á milli marka samt 6 stig. Þetta kallast meistaraheppni!
Gunni
Þetta hefur ekkert með heppni að gera. Það er bara svo miklu meira svekkjandi fyrir poolarana þegar þetta er svona.
Skrifa ummæli