19. jan. 2009
Bergmann jr
Það reynist erfitt fyrir Norðmennina að takast á við að það séu tveir Bergmenn í vinnu hérna. Þeir hafa þó leyst það með því að titla mig alltaf Bergmann jr á vinnuplani dagsins. Fyrir ykkur sem eruð vel að ykkur í titlum (sem ég var ekki) þá vitið þið að junior á (í það minnsta í Noregi) við samnefndan son. Það eru því þónokkrir sem hafa spurt mig hvort ég sé í alvöru sonur Jóns Braga og ég svara því að sjálfsögðu alltaf játandi enda er hann miklu eldri en ég.
4 ummæli:
Þér finnst væntanlega ekki leiðinlegt að fá þessa spurningu, hefur lent í því áður og oft sagt frá því ástin mín. Gangi þér vel í vinnunni á morgun..... Kv. Edda
What a game!! 4-2!
Vonandi gengur vel að spila á gítarinn. Biðað heilsa senior.
Gunni
þar kom vel á vondann, Bergmann senior ber aldurinn vel.
kv. Arnar
Já hann lítur ekki beinlínis út fyrir að vera pabbi minn. Við erum ýmist spurðir hvor sé eldri eða hvort ég sé sonur hans. Fyndið
Skrifa ummæli