Boltinn
Ég er að verða svolítið leiður á öllum þessum fréttum af mönnum sem MUFC á að vera á höttunum eftir. Best væri að sögurnar hættu bara alveg og þeir keyptu menn í stað þess að slúðra um það. Eða þá ekki. Maður vinnur ekki titla á að slúðra í blöðin. Ef þetta lið þarna eyddi helmingnum af þeim tíma sem þeir nota í að blaðra við blaðamenn þá mundi kannski eitthvað ganga upp hjá þeim.
Andleysi
Ég hef eitthvað svo lítið að segja þessa dagana. Kannski er það af því að ég hef verið að vinna svo mikið eða kannski er það bara af því að ég er sprunginn. Heimsækið mig daglega næstu vikurnar og þið munuð komast að því hvort er.
Skottulæknir
Sá Birnu Smith í Kastljósinu í gær. Hvernig er hægt að vera svona ótrúlega ósvífin. Konan sat þarna í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu og hélt því fram fyrir framan alþjóð að hún gæti talað við stofnfrumuna (ath. ekki fleirtala heldur eintala) og þannig læknað sjálfa sig af alls kyns kvillum. Mér fannst Magnús Karl komast vel frá þessu því hann hrakti allt sem hún sagði án þess að vera ókurteis eða hleypidómafullur. Hann bara svaraði henni með vísindalegum rökum. Greyið konan gerði sig að algeru fífli og maður eiginlega vorkenndi henni bara að vera svona ótrúlega eitthvað bjánaleg. Það er nú lágmark að koma sæmilega undirbúin í svona rökræður en það var augljóst að konugreyið hefur aldrei einu sinni litið í líffræðibókina sína í gaggó. Mér liggur við að segja að hún hafi ekki einu sinni verslað í bókabúð sem selur líffræðibækur, svo illa var hún að sér. Nú er ekki svo að ég sé alfarið á móti óhefðbundnum lækningum. Síður en svo. Ég er bara á móti því að svona loddarar haldi því fram að þeir geti læknað sjúkdóma með eintómu kukli af því að einhver lærifaðir þeirra sem sennilega er geðveikur segir þeim að það sé hægt. Ég er líka á móti kuklurum sem ráða skjólstæðingum sínum að afþakka hefðbundnar vísindalega rannsakaðar meðferðir og þiggja í staðinn eitthvað djöfulsins óvísindalegt og ósannað fimbulfamb. Þetta jaðrar á köflum við tilraun til manndráps.
Ég ber hins vegar virðingu fyrir þeim sem bera virðingu fyrir læknavísindunum. Fjölmargir iðkendur óhefðbundinna lækninga leggja hart að skjólstæðingum sínum að þiggja áfram hefðbundnar meðferðir og útskýra fyrir sjúklingnum að hvor aðferð fyrir sig hjálpi hinni í virkni sinni. Hvort sem það er rétt eður ei er víst að margar óhefðbundnar aðferðir gera fólki, sem er komið á fremsta hlunn með að gefast upp, kleift að sjá einhverja von áfram og hún er það mikilvægasta sem langveikur sjúklingur býr yfir.
Kári fór líka á kostum!!!
Kári fór líka á kostum í þess Kastljósi og ræð ég þeim sem misstu af honum að nálgast hann. Held það sé hægt á netinu. Kári var eins og snaróður vísindamaður með silfurgrátt hárið upp í loftið og tryllingslegt augnaráð. Síðan fór hann í stríð við eyrnagræjuna og þá var orrustan töpuð. Hann hringsnerist í stúdíóinu og sýndi myndavélinni rassinn ítrekað. Það vantaði bara að hann múnaði í myndavélina.
Læt þetta duga í bili. Látið endilega heyra í ykkur á kommentakerfinu. Það gengur ekki að þetta sé bara spjallþráður fyrir þá Heiðar og Þorgeir.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli