20. nóv. 2005

Boltinn
Mínir menn tóku sig saman í andlitinu eftir sjokkerandi viku og gengu frá Charlton í dag. Gaman að sjá hvað Nistelrooy er í miklu stuði á þessu tímabili og nú verður maður bara að krossa fingur að hann meiðist ekki. Sömuleiðis má skilja á umfjöllun soccernet að Rooney hafi verið allt í öllu í leiknum í dag. Ég er alveg hrikalega ánægður með hvernig hann hefur staðið sig í vetur. Það er eiginlega miðjan og vörnin sem hefur verið að klikka en ekki sóknin og markvarslan á þessu tímabili.

Vaktirnar
Það er ótrúlegt hvað vaktirnar geta verið misjafnar. Yfirleitt er nóg að gera en samt þannig að maður getur andað á milli. Svo kemur ein og ein vakt þar sem er rólegt en oftar er breytileikinn í hina áttina og manni virðist sem allir landsmenn séu annað hvort fárveikir eða gjörsamlega geðveikir í slagsmálum og vitleysisgangi. Á vöktunum hérna sér maður sem sé bæði um gjörgæsluna og að svæfa fyrir þær bráðaaðgerðir sem koma upp. Maður er í náinni samvinnu við sérfræðinginn á vaktinni sem er á bundinni vakt í húsinu. Vaktirnar eru mjög lærdómsríkar auk þess sem þær eru mjög skemmtilegar en það er auðvitað svolítið vandnotað orð þegar maður er að fást við mjög veikt fólk. Að sjálfsögðu er ekkert gaman að sjá fárveikt fólk en það er engu að síður sérstaklega gaman þegar vel tekst til með bráðameðferðina. Á gjörgæslu eru venjulega veikustu sjúklingar spítalans hverju sinni og er ein slík á hvorum spítalanum auk þess sem það eru nokkur slík pláss á Akureyri. Margir gera að því grín að svæfingalæknar vilji helst sleppa við samskiptin við sjúklinga og vissulega eru þeir oft ekki til viðræðu en þá er einmitt mikið um samskipti við áhyggjufulla ættingja sem koma í staðinn og eru oft miklu vandmeðfarnari. Það er því mikill misskilningur að mannleg samskipti séu ekki ríkur þáttur í starfi svæfinga- og gjörgæslulækna og flestir hafa þeir einstakt lag á erfiðum kringumstæðum.

Skemmtilegar fréttir
Mogginn klikkar aldrei í áhugaverðum og mikilvægum fréttum eins og dæmin sanna. Ótrúlegt að mesti fréttavefur landsins skuli alltaf vera með svona ótrúlega tilgangslausar fréttir. Get ekki skilið að nokkur maður hafi áhuga á að vita það að einhver hafi skemmt bílinn sinn með því að aka á einhvern rolluræfil en ég hef svo sem haft rangt fyrir mér áður. Ekki oft en það hefur komið fyrir ;)

Konur gera það gott í prófkjörum
Sá úrslitin í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Þrjár konur af fimm efstu og 4 af 8 efstu. Það var löngu kominn tími á frambærilegar konur í Sjálfstæðisflokknum sem hingað til hefur alls ekki höfðað til kvenna. Ég veit ekki hvað breyttist en breytingin er góð.

Engin ummæli: