Helgin
Er búinn að vera fremur rólegur um helgina þrátt fyrir að vera ekki í vinnunni. Á föstudaginn vorum við skötuhjúin bara róleg hérna heima að vinna í boðskortamálum og ég fékk mér einn bjór. Það var bara fínt að vera heima svona einu sinni og slaka á þó undirbúningur brúðkaupsins hafi verið meginþema kvöldsins. Síðan var tekið á því í gær því ég fór í Laugar í gærmorgunn. Síðan var farið í Smáralind í allskyns búðastúss þar sem ég keypti mér þessa líka fínu íþróttapeysu í Zara. Við urðum líka vitni að því þegar 470 jójógráðug börn settu heimsmet í fjöldajójói. Það ótrúlegt hvað hægt er að fá fólk til að gera fyrir ókeypis hluti.
Eftir Smáralind fór ég aðeins í spæjaragírinn og fann nokkur heimilisföng hjá tilvonandi brúðkaupsgestum en seinni partinn fór ég síðan í boltann og loks í mat til Svenna mágs sem hélt matarboð fyrir nánustu fjölskyldu í tilefni af afmælinu sínu. Þar fékk maður aðeins í aðra tánna og frábært læri líka. Komum heim um tvöleytið og þá fór ég algerlega uppgefinn í bælið.
Svaf síðan frameftir í morgunn og er svo búinn að vera í þessu boðskortaveseni í allan dag. Það gengur ágætlega.
Ætla síðan að gera heimatilbúna pizzu fyrir okkur á eftir en við verðum sjálfsagt langt fram á kvöld í þessu stússi öllu saman.
Króatinn á vertíð
Króatinn var svo blankur að hann skellti sér á vertíð til Ísafjarðar. Þar stundar hann hvalveiðar af kappi um helgar en í miðri viku skrifar hann ritgerð af miklu kappi. Sendum honum baráttukveðjur á Ísafjörð. Áfram Krói - You can do it!!!
England-Argentína
Helvítis Tjallarnir geta þetta þá ennþá. Owen litli er að blómstra hjá Newcastle og sannaði sig enn og aftur í gær með því að skora 2 í lokin eftir að hafa varla sést í leiknum (ef marka má lýsingar). Það eru alltaf góðir framherjar sem geta átt lélegan leik en samt skorað tvö mörk. Annars verð ég nú að segja að mér finnst mest gaman þegar S-Ameríkuþjóðirnar vinna þessa heimsmeistaratitla því fótboltinn þeirra er bara svo miklu skemmtilegri og meira fyrir augað. Ég held ég haldi bara í gamlan vana og haldi með Brössum á næsta HM.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli