Prófkjörið
Þá er prófkjörinu lokið og flokkurinn getur snúið sér að baráttunni um borgina. Þrátt fyrir að baráttunni um fyrsta sætið hafi ekki lokið eins og ég vonaði er margt jákvætt við niðurstöðuna.
Í fyrsta lagi eru konur augljósir sigurvegarar í prófkjörinu. Hanna Birna nær örugglega öðru sætinu og síðan eru fjórar aðrar konur í tíu efstu sætunum. Það er langt síðan konur hafa náð svona glæsilegum árangri í prófkjöri flokksins og ég held að við sem höfum stutt flokkinn ættum að vera stolt af þessu. Sennilega hefur nýafstaðin kröfuganga kvenna í borginni átt sinn þátt í þessum glæsilega árangri en ég held að meginástæða þessarar frábæru niðurstöðu sé sú að þessar konur eru einstaklega frambærilegar, hver á sinn hátt.
Í öðru lagi held ég að við getum fagnað því hvað unga kynslóðin stóð sig vel í þessu prófkjöri. Af tíu efstu eru sjö sem eru yngri en fertugir og átta yngri en fimmtugir. Júlíus Vífill er fæddur 1951 og Vilhjálmur 1846... nei ég meina 1946. Ég tel því að Sjálfstæðismenn séu að veðja á nýja kynslóð í flokknum og það er gott.
Í þriðja lagi finnst mér mikilvægt að flokksmenn eru að veita mörgum einstaklingum sem ekki hafa verið áberandi í borgarpólítíkinni kjörgengi. Það er sem sé ekki bara unga kynslóðin sem er að ryðja sér til rúms heldur líka mikið af nýju fólki. Þetta held ég að muni reynast mjög mikilvægt þegar kemur að kosningunum í vor.
Það er svo sem ekki margt neikvætt við þetta prófkjör að mínu mati. Það helsta er að Vilhjálmur skyldi sigra en ég vona bara að hann komi mér á óvart. Auk þess finnst mér ekki gott hvað Júlíus Vífill og Bolli enduðu ofarlega. Ég er ekki sérlega hrifinn af þeim tveimur af ástæðum sem ég ætla ekki að básúna hér. Látum bara sitja við það að mér líkar ekki fyrri saga þeirra innan sem utan flokksins.
Í framhaldinu held ég að það væri sterkur leikur að færa Gísla Martein niður í áttunda sætið og nýta sér þannig það mikla persónufylgi sem hann hefur og færa síðan þá sem eru á milli hans og áttunda sætisins ofar sem því nemur. Ég er hvorki viss um að prófkjörsreglur leyfi þetta (hef ekki kynnt mér það) né hvort Gísli Marteinn væri yfirhöfuð fáanlegur til þess ef reglur flokksins leyfðu.
Boltinn
Mínir menn stóðu sig í gær þrátt fyrir hrakspár mínar. Frábært afrek að binda enda á 40 leikja sigurgöngu Chelskymanna. Maður minnist með gleði í hjarta á það þegar við bundum enda á aðra aðeins lengri sigurgöngu í fyrrahaust um svipað leyti. Mér skilst nú að úrslitin hafi ekki endilega verið alveg sanngjörn, að kannski hefði jafntefli gefið rétta mynd af gangi leiksins en mér er sama. Þrjú stig eru gulls ígildi hverjir svo sem andstæðingarnir eru og hvernig sem þau nást. Það er líka augljóst að Keane hefur mikil áhrif á frammistöðu sinna manna þrátt fyrir að hann spili ekki leikina sjálfur. Þvílíkur leiðtogi. Þó hann hafi dalað töluvert á síðastliðnum árum held ég að það verði erfitt að finna arftaka hans. Svona miðjumenn fæðast ekki nema einu sinni á áratug. Nú vona ég bara að mínir menn finni sjálfstraustið sem þá hefur vantað svo tilfinnanlega síðastliðnar vikur.
Da Vinci Code
Var að ljúka við þessa frábæru bók og hef verið að surfa á netinu í leit að allskyns vitleysu tengdri því sem kemur fram í bókinni. Dan Brown hefur lagst yfir ótrúlega heimildavinnu áður en hann setti saman þessa frábæru sögu og verður hann að fá hrós fyrir frábæra fléttu og einstaka frásagnargáfu. Sumt fólk er bara fætt til að segja sögur. Ég las þessar tæpu 600 síður á rúmri viku, þar af hef ég lesið rúmlega 300 núna um helgina. Ég hef verið á næturaktinni um helgina og það hefur verið fremur rólegt auk þess sem ég hef verið andvaka síðustu tvær nætur eins og sést á ókristilegri tímasetningu þessarar færslu.
Annars þá finnst mér "plottið" alveg frábært en ætla að sjálfsögðu ekki að ljóstra upp um það hér ef vera skildi að einhver annar en ég sé ekki löngu búinn að lesa bókina. Ef það á við um eitthvert ykkur ræð ég þeim hinum sama að ráða bót á því hið snarasta.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli