Prófkjörið
Fór að kjósa áðan og Valhöll var full út úr dyrum. Þrátt fyrir að vera skráður í flokkinn þá fékk ég bara tvær hringingar. Þær voru frá Davíð Ólafi og hringdi Hafsteinn í mig í morgunn en ég geri ráð fyrir að það hafi verið fyrir Gísla Martein. Það verður gaman að fylgjast með þessu í kvöld og sjá hvernig þetta fer allt saman. Ég vona að Gísli nafni minn vinni en ég vona eiginlega enn frekar að Sjálfstæðismenn hafi séð sóma sinn í kjósa allar þessar efnilegu konur. Það væri klókt fyrir komandi kosningar að stilla upp lista með þessum efnilegu konum.
Boltinn
Ég þori ekki fyrir mitt litla líf að horfa á leikinn á morgunn. Ég vona auðvitað að mínir menn standi sig en ég get ekki hugsað mér að sjá þá tapa fyrir Chelsky. Annars held ég að Ferguson verði rekinn fljótlega ef þetta fer ekki að ganga. Hann er of stoltur til að segja upp og það gæti gert það að verkum að stjórnin verði að reka hann. Það væri leiðinlegur endir á annars frábærum ferli þessa magnaða þjálfara.
Nína Þorbjörg
Gleymdi að minnast á í síðustu færslum að Árni Grímur og Steinunn hafa nefnt litluna sína þessu fallega nafni. Til hamingju með nafnið öllsömul.
Annars ætla ég að láta þetta gott heita í dag. Skrifa aftur fljótlega.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli