Jæja!
Það fer að styttast í sjöþúsandasta gestinn hér á síðunni. Ef ég dreg þá sjálfsögðu ályktun að ekki nokkur maður nenni að kíkja á þessa síðu oftar en einu sinni þá eru þetta næstum 2,5% þjóðarinnar. Ótrúlegt ekki satt.
Jólafögnuður í vinnunni
Var í vinnunni í nótt og það var heilmikið að gera. Ætla því að leggja mig seinnipartinn svo ég verði upplagður í jólafögnuð í vinnunni í kvöld. Við ætlum að fara út að borða á Skólabrú þar sem við ætlum að gæða okkur á jólakvöldverð. Það verður örugglega hörkustuð. Held reyndar að allir hinir deildarlæknarnir ætli að kjúklinga á þessu. Þá er bara að detta í það með sérfræðingunum og hjúkkunum. Það verður fínt. Skilst að það hafi verið hörkustuð í fyrra svo maður bíður bara spenntur.
United
Mínir menn skitu í sig á móti Villareal á heimavelli á miðvikudag enda ekki við öðru að búast. Þeir hafa náð algeru Arsenalformi í CL og verða nú að vinna Benfica á útivelli í síðustu umferðinni til að eiga möguleika á að komast áfram. Það verður létt verk og löðurmannlegt.
Föt og frakki, kökubiti!!
Fór í morgunn í Herrahúsið á Laugavegi og reddaði brúðkaupsdressinu ásamt frakka og ýmislegu smálegu. Tók klukkutíma en svo á eftir að lagfæra fötin lítið eitt. Snilld. Var búinn að kvíða þessu í marga mánuði en þetta var fljótgert. Sá gamli kom með og keypti sér líka föt. Við verðum aðalgæjarnir í partýinu ásamt Valda tengdó. Það er búið að gera mikið grín að kallinum og veðmál standa yfir hversu lengi hann verði að draga Eddu upp að altarinu. Flestir veðja á 8 sek. sléttar en ég ætla að gefa kallinum smá breik og segja 11 sek sléttar. Valdi er nefnilega svo röskur að það verður eitthvað súrt hjá honum og að dóla eitthvað upp kirkjugólfið. Hann vill örugglega ná góðum sætum við altarið eða eitthvað. Sjáum hvað setur.
ÁTVR
Hversu viðeigandi er það að Átthagafélag Vestmannaeyinga á Reykjavíkursvæðinu beri þetta nafn. Mér finnst þetta bara kúl.
George Best
Fallinn er frá einhver mesta goðsögn í sögu MUFC. Ekki nóg með að hann væri snillingur í fótbolta heldur var hann líka umdeildur glaumgosi og fyrsti rokkstjörnufótboltamaðurinn. Auk þess var hann ölur mjög og frægt er orðið þegar hann sagði í viðtali að hann hefði eitt megninu af peningunum sínum í konur, bíla og skemmtanir. Restinni sagðist hann hafa eytt í vitleysu.
Þrátt fyrir að hafa verið versti aumingi verður seint tekið af Best að hann var einn ástsælasti leikmaður MUFC fyrr og síðar og vottar Ljós-Gíslinn honum virðingu sína. Sannur snillingur hefur safnast til feðra sinna.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli