10. nóv. 2005

Vinna og aftur vinna
Var að klára svolítið erfiða vaktaviku. Tók 5 vaktir á 8 dögum. Það getur tekið helvíti hraustlega á, sérstaklega ef það er mikið að gera. Nú tek ég ekki vakt í nokkra daga og get hlaðið batteríin en þetta eru reyndar fremur erfiðar vikur framundan þar sem ég er að taka vaktir aðra hverja helgi í einn og hálfan mánuð. En maður kvartar ekki því yfirleitt finnst mér gaman í vinnunni (að því undanskildu að það er ekki gaman að fólk skuli vera veikt).

Brúðkaupsundirbúningur
Það er allt að komast á fullt. Boðskort, tónlist, matur, ljósmyndari o.s.frv. Ætli við verðum ekki orðin brjáluð áður en yfir líkur. Það er alla vega frá að panta kirkju, prest og sal. Gott að vera búinn að því. Nú er bara spenningurinn hjá ykkur félagar. Fáið þið boð eða ekki. Það er spurningin.

Heiðar og Þorgeir
Þeir félagar eiga greinilega margt vantalað. Þeir standa í þeirri trú að commentakerfið mitt sé spjallþráður fyrir þá og verði þeim að góðu. Við hin höldum þá bara áfram að nota MSN. Njótið piltar.

Engin ummæli: