Burtfarartónleikar Valgerðar Jónsdóttur sópransöngkonu frá FÍH
Valgerður þessi vinnur með Eddu á leikskólanum og bauð okkur að koma á burtfarartónleikana sína í kvöld. Við skelltum okkur að sjálfsögðu og vorum ekki svikin af því. Valgerður söng margvísleg lög á öllum mögulegum og ómögulegum tungumálum frá íslensku til hebresku. Þetta gerði hún allt saman listavel en mér fannst túlkun hennar á ljóði Davíðs Stefánssonar ?Haust? við eigið lag standa upp úr. Ekki nóg með að hún hafi sungið það frábærlega heldur var lagið fallegt og greinilegt að þar fer hæfileikamanneskja. Hún söng einnig lagið Elín Helena listavel, sérstaklega þegar hún var klöppuð upp. Þarna er greinilega á ferðinni frábær söngkona, hlakka til að sjá hana syngja meira. Til hamingju Valgerður ef þú skyldir lesa þetta.
Boltinn
Heskey seldur á okurverði til Birmingham, Hitzfeld hættir með Bayern, Smith á leiðinni til MUFC (hvað þá!!!!) og Víkingar drulluðu á sig í fyrstu umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu.
Hef fengið loforð frá liðstjóra Víkinga sem er nágranni minn að þeir muni standa sig betur næstkomandi föstudag ? eins gott.
Eurovision
Ekki gott. Mér fannst lagið alls ekki njóta sín en mér fannst lagið sjálft allt í lagi. Textinn var reyndar svolítið þunnur og lagið hálfstolið en það var stolið úr góðu lagi þannig að mér fannst það koma ágætlega út. Greyið Jónsi þurfti að vera í allan tímann og gat ekki heillað dömurnar og herrana með sveittum hlýramassabol. Jónsi lét hafa eftir sér að hann hafi verið svekktari yfir því en genginu í keppninni.
Bræðurnir Þorgeir og Önundur...
...eða Gorgeir og Önugur eins og flestir kalla þá eru næstum jafnslappir og Geislinn í blogginu þessa dagana. Nú hef ég bætt úr mínu bloggfalli. Sjáum hvað þeir gera.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli